131. löggjafarþing — 107. fundur,  11. apr. 2005.

Varamenn taka þingsæti.

[14:02]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur bréf frá Arnbjörgu Sveinsdóttur, varaformanni þingflokks sjálfstæðismanna, dagsett 11. apríl, og hljóðar svo:

„Þar sem Davíð Oddsson utanríkisráðherra, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, getur ekki vegna veikinda sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Ásta Möller, taki sæti á Alþingi á meðan.“

 

Ásta Möller hefur áður setið á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.