Ríkisútvarpið sf.
menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S) (andsvar):
Hæstv. forseti. Varðandi þetta síðasta atriði sem tengist almannaþjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins, það er í rauninni algerlega óbreytt. Ríkisútvarpið nær núna að vísu ekki til alls landsins, heldur tæplega 99% minnir mig að talan sé. Það verður algerlega óbreytt, sú krafa verður áfram uppi að Ríkisútvarpið eigi að ná til allra landsmanna en þess er sérstaklega getið í einni lagagreininni að ef þær kröfur sem m.a. Alþingi gerir til Ríkisútvarpsins varðandi dreifingu muni hafa í för með sér mikinn kostnaðarauka fyrir Ríkisútvarpið sf. þurfi sérstaklega að semja um þann kostnaðarauka við Ríkisútvarpið.
Varðandi hitt atriðið, af hverju ekki hafi verið beðið með að ræða þetta mál eða láta fjölmiðlanefndina fá málið til sín er alveg ljóst að þegar ég byrjaði sem ráðherra fyrir rúmu ári hófst strax vinna að málefnum Ríkisútvarpsins. Það kom strax í ljós, bæði í viðtölum og m.a. í umræðum hér á þingi, að sú vinna væri löngu hafin. Hún var mjög langt komin. Það var líka alveg skýrt í erindisbréfi nefndarinnar, og m.a. til hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur sem var í fjölmiðlanefndinni, að sú vinna væri m.a. í gangi á milli stjórnarflokkanna en sú vinna átti sér fyrst og fremst stað í menntamálaráðuneytinu og að mínu frumkvæði og hefur verið unnin þar. Sú vinna var bara komin það langt að ég taldi ekki rétt að setja hana inn í fjölmiðlanefndina, enda er alveg ljóst að þær áherslur sem fjölmiðlanefndin leggur í skýrsluna varðandi Ríkisútvarpið, varðandi hvaða kröfur fjölmiðlanefndin gerir til Ríkisútvarpsins, eru í algjöru samhengi og samræmi við þær kröfur sem ég geri m.a. í þessu frumvarpi. Ég tel að með þessu frumvarpi sem við erum að ræða í dag séum við einmitt að koma til móts við þær kröfur sem fjölmiðlanefndin gerir til Ríkisútvarpsins, þær eru í algeru samræmi við þær kröfur sem ég geri m.a. í þessu frumvarpi. Með því erum við einmitt að koma til móts við þær kröfur sem fjölmiðlanefndin gerir til Ríkisútvarpsins, m.a. varðandi dreifingu og almannaþjónustuhlutverk, innlenda dagskrárgerð og eflingu hennar.