131. löggjafarþing — 107. fundur,  11. apr. 2005.

Ríkisútvarpið sf.

643. mál
[16:57]

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil í fyrsta lagi spyrja hæstv. menntamálaráðherra um lífeyrisskuldbindingar vegna RÚV sem eru mjög þungur baggi, um 2,6 milljarðar kr. og afborganir um 220 millj. á ári. Ég vitna í því sambandi til svars hæstv. menntamálaráðherra fyrr á þessum vetri við fyrirspurn Marðar Árnasonar um þetta efni en þá sagði hæstv. ráðherra orðrétt:

„Ég vil jafnframt undirstrika að það er von mín að hægt verði að leysa úr þessum málum á næsta ári.“

Það er þetta ár. Ég sé ekki að í þeim tekjum sem RÚV eru ætlaðar með þessum nefskatti sé gert ráð fyrir að það verði svigrúm til þess að greiða niður þessar lífeyrisskuldbindingar og ég vil inna hæstv. ráðherra eftir því.

Í öðru lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra um ákvæði til bráðabirgða þar sem talað er um hvernig fara skuli með fyrstu stjórn félagsins en eigi síðar en 15 dögum eftir að Alþingi kýs menn til setu í stjórn félagsins skal menntamálaráðherra halda stofnfund Ríkisútvarpsins þar sem þessi stjórn verður sérstaklega kjörin. Ég spyr um þetta af því að í ákvæði til bráðabirgða er ekkert getið um hver staða núverandi útvarpsstjóra verði við þessa formbreytingu. Verður staðan auglýst aftur og nýrri stjórn gefið færi á að skipa nýjan útvarpsstjóra í samræmi við ákvæði 9. gr. frumvarpsins um að það sé starfssvið stjórnarinnar að ráða útvarpsstjóra og leysa hann frá störfum? Eða hvernig verður með farið? Ég sé ekki annað en að forsendur fyrir ráðningu hans séu brostnar þegar verið er að breyta RÚV í sameignarfélag þannig að ég vil spyrja hæstv. ráðherra um þetta. Fellur útvarpsstjóri þá undir ákvæðin sem eru í frumvarpinu þar sem segir að fastráðnir starfsmenn Ríkisútvarpsins skuli eiga rétt á störfum hjá hinu nýja félagi og skuli þeim boðin störf hjá því sambærileg þeim sem þeir áður gegndu hjá stofnuninni?