131. löggjafarþing — 107. fundur,  11. apr. 2005.

Ríkisútvarpið sf.

643. mál
[18:46]

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hlý orð í minn garð. Það er ekki oft að slíkt rekur á fjörur manns í þinginu frá hv. stjórnarþingmönnum. Ég verð að segja að þó að það kunni að þykja furðulegt erum við, ég og hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson, sammála um ýmis efni sem lúta að frumvarpinu. Ég skil hins vegar ekki hvernig hann getur litið á þetta sem sérstaka framför nema þá að skrefið sem nú á að taka auki möguleikana á því að Ríkisútvarpinu verði komið á einkamarkað, selt eða gefið öðrum aðilum en almannavaldinu, eins og fyrir liggur, eða a.m.k. lá á fyrra þingi, tillaga um frá hv. þingmanni undir forustu hv. þm. Péturs H. Blöndals.

Ég vil spyrja hv. þingmann að því, vegna þess að ég tek undir gagnrýni hans á hina víðu skilgreiningu 3. gr. og hinar umtalsverðu heimildir 5. og 6. gr., hvort hann skilur það svo að hið raunverulega inntak frumvarpsins sé almannaútvarp, samkvæmt þeim skilgreiningum sem til eru um það, eða hvort hið nýja fyrirtæki sé venjuleg útvarpsstöð á venjulegum samkeppnismarkaði sem getur keppt eins og henni sýnist ef 3. gr. og III. kafla verður ekki breytt í meðförum þingsins, sem ég vona að komi ekki til vegna þess að ég held að frumvarpið eigi ekki að fara lengra en í 1. umr.