131. löggjafarþing — 108. fundur, 12. apr. 2005.
Beiðni um skýrslu.
[13:53]
Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil segja um þetta að á fundi forsætisnefndar höfum við tekið fyrir fyrirspurnir og önnur mál sem hafa dregist úr hömlu. Mér finnst sjálfsagt að þetta mál sé tekið fyrir og athugað á fundi forsætisnefndar og hefði satt að segja vænst þess ef þetta mál yrði tekið upp hér að ég hefði verið aðvaraður um það fyrir fram.