Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.
Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):
Frú forseti. Það kom fram í ræðu hæstv. ráðherra að framlag til viðhalds vega væri að aukast og það er alveg rétt ef litið er eitt ár aftur í tímann. Það er eilítið lægra framlag á árinu 2004 en er ætlað til ársins 2005. En öll árin þar á undan aftur til 1998 og ef ekki lengur er varið miklu hærri upphæð til viðhalds. Mér finnst þetta vera sérkennileg forgangsröðun núna þegar þungaflutningar eru að aukast á vegunum og við sem keyrum mikið sjáum jafnvel mun á milli mánaða á ástandi vega. Ég hef verulegar áhyggjur af því að við verjum of litlu til viðhalds miðað við þá flutninga sem eru á vegunum.