Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.
Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):
Frú forseti. Það var tekin ákvörðun um að endurbyggja Reykjavíkurflugvöll en ekki að reisa nýjan flugvöll á svæðinu. Það var nefnilega byggður nýr flugvöllur. Núna erum við að negla enn frekar þessa ákvörðun hernámsliðs Breta í síðustu heimsstyrjöld um að halda við flugvelli á einu dýrasta byggingarsvæði landsins og byggja nýja flugstöð til viðbótar. Þannig er alltaf verið að taka nýjar og nýjar ákvarðanir í þrepum sem kosta óhemju fé fyrir Reykvíkinga, mikla tímaeyðslu, geysilega tímaeyðslu. Ég vil spyrja hæstv. samgönguráðherra hvort metin hafi verið tímaeyðsla tuga þúsunda Reykvíkinga við að keyra langar leiðir í úthverfin miðað við þá tímaeyðslu sem sparast hjá landsbyggðarfólki og hvort menn hafi skoðað í alvöru að byggja flugvöllinn annars staðar í nágrenni Reykjavíkur. (Gripið fram í: ... umferðaröngþveiti sem myndast við byggingu ...) (Gripið fram í.)