131. löggjafarþing — 108. fundur,  12. apr. 2005.

Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.

721. mál
[14:29]

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Endurbygging Reykjavíkurflugvallar var gerð með leyfi borgaryfirvalda og sérstakri samþykkt þannig að við erum ekki að ganga hér gegn hagsmunum borgaryfirvalda í andstöðu við borgaryfirvöld.

Það er mjög flókið að meta ferðatíma borgarbúa. En á sínum tíma þegar verið var að undirbúa endurbyggingu Reykjavíkurflugvallar var lagt mat á hvort aðrir kostir væru betri í stöðunni. Niðurstaðan varð sú eftir mjög vandlega athugun að skynsamlegast væri að endurbyggja Reykjavíkurflugvöll og að hann yrði í Vatnsmýrinni áfram.

Út frá sjónarhorni hv. þingmanns met ég fyrirspurnir hans athyglisverðar. En það liggur hins vegar (Forseti hringir.) algerlega fyrir að það var vilji Alþingis og vilji borgaryfirvalda að endurbyggja flugvöllinn og það var enginn fyrirvari á því.