Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.
Gunnar Birgisson (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég er nú ekki það ósanngjarn að ætlast til að höfuðborgarsvæðið fái fjármagn í samræmi við fjölda íbúa en a.m.k. að hlutfallið verði lagað. Auðvitað eru þessir vegir okkar allra í landinu og ég sem gamall landsbyggðarmaður er mikill fylgismaður þess að samgöngur eru einn af grunnþáttunum í því að byggð haldist í landinu. Það er ljóst. En að hafa þetta þannig að klippa höfuðborgarsvæðið nánast út er óásættanlegt.
Það er annað sem ekki hefur komið fram og það eru götur á höfuðborgarsvæðinu í eigu sveitarfélaganna þar sem gífurlega mikil umferð fer um og af þeim safnast tekjur í vegasjóð sem bæjarfélögin fá ekki neitt af, þ.e. part af þungaskatti eða bensíngjaldi eða einu eða neinu, og hefur ekki fengist rætt við ríkisvaldið. Þetta er því enn þá ósanngjarnara ef maður lítur á þetta út frá því sjónarhorni.
Verið er að tala um lengd veganna. Það er auðvitað ekki hægt að bera slíkt saman, að bera saman vegi úti á landi, marga hverja, sem eru kannski 6 metra vegir og vegi hér með fjórar og upp í sex akreinar með mislægum gatnamótum og öðru slíku.
Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon sagði að það væru tæplega 200 þúsund bílar í landinu og ég hugsa að það sé rétt. Ætli 150 þúsund þeirra séu ekki á höfuðborgarsvæðinu? Þeir borga náttúrlega mestu tekjurnar inn í ríkissjóð til þess að vegaframkvæmdir og viðhald geti átt sér stað.
Þingmenn landsbyggðarinnar verða að vera sanngjarnir í þessum málum. Ég get alveg sagt að við þingmennirnir á höfuðborgarsvæðinu, alla vega geri ég það ekki, látum ekki bjóða okkur slíka misskiptingu á fjármunum eins og lagt er til í þessari samgönguáætlun.