131. löggjafarþing — 108. fundur,  12. apr. 2005.

Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.

721. mál
[15:46]

Einar Oddur Kristjánsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er náttúrlega löngu vitað og almenn samstaða um að það þyrftu að vera miklu meiri peningar til vegamála. Við erum alveg sambærileg í öllum hlutum, Íslendingar, við þær þjóðir heims sem hafa það hvað best á öllum sviðum, nema kannski í samgöngum á landi. Þetta eru staðreyndir sem ég held að menn séu á einu máli um.

Ég get vel skilið að menn komi og segi að það vanti meiri peninga. Ég er nefnilega alveg nákvæmlega sammála, það vantar mun meiri peninga og það væri nær að menn sameinuðust um að reyna að koma með meiri peninga í þetta.

Hv. þm., dr. Gunnar Birgisson, er eins og allir vita sá sem kann mest um vegi á þinginu. Hann kom og gerði athugasemdir við skiptinguna á fénu. Hann boðaði líka að hann ætlaði við 2. umr. að flytja breytingartillögu. Því kem ég og spyr til að vita þetta alveg hreint: Ætlar hv. þingmaður að koma með breytingartillögu um að minnka framlög til vegamála í Norðvesturkjördæmi og auka þau annars staðar? Á ég von á slíkri tillögu? Ég þyrfti að fá að vita það vegna þess að Norðvesturkjördæmið er sá hluti landsins þar sem samgöngur eru skemmst á veg komnar. Norðvesturkjördæmið er það kjördæmi þar sem byggðin stendur hvað veikast að vígi. Allir eru sammála um að fátt gæti orðið betra fyrir einmitt svæðið í heild og byggð þar en að efla þar samgöngur.

Því er nauðsynlegt, herra forseti, að fá hrein og skýr svör frá hv. þingmanni.