131. löggjafarþing — 108. fundur,  12. apr. 2005.

Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.

721. mál
[17:46]

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Varðandi tekjuskattinn fyrst, þá sagði ég ekki annað en það sem ég sagði við umræðuna um tekjuskattsmálið þegar hún fór fram. Ég held því enn fram að menn hafi farið óvarlega þegar þessar ákvarðanir voru festar í lög í stað þess að setja þær fram sem áætlun og ákveða síðan með lagasetningu í hvaða áföngum yrði farið í þá lækkun.

Það kemur mér á óvart ef það er ekki áhugi á Sundabraut hjá R-listanum. Öðruvísi hafa menn talað, borgarstjóri og fleiri sem ég hef hlustað á, hvað þetta varðar. Ég verð að segja að vonbrigði borgarstjórans með þá vegáætlun sem nú liggur fyrir hafa komið fram. Þess vegna tel ég ekki ástæðu til þess að ræða það meira, enda stuttur tími til stefnu.

Varðandi mislæg gatnamót í borginni, Kringlumýrar- og Miklubrautar, þá hef ég í sjálfu sér ekki lagst yfir það mál, hvað sé skynsamlegast þar. Borgaryfirvöld eiga auðvitað, ásamt Vegagerð og stjórnvöldum að taka ákvörðun um hvað verði gert. Ég sé bara hver niðurstaðan er núna og ætla svo sem ekki að blanda mér meira í þá umræðu.

Mér finnst svolítið gaman að þessu, hvernig umræðan hefur verið hér í dag. Ég sé að það er töluverður munur á afstöðu manna til hennar og þeir þora að láta þann mun koma fram í umræðunni, sjálfstæðismenn, varðandi það hvernig eigi að standa að vegamálum. Ég held að það væri ágætt að þingmenn væru oftar hreinskilnir í sölum Alþingis og segðu hvað þeir vilja.