131. löggjafarþing — 108. fundur,  12. apr. 2005.

Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.

721. mál
[17:49]

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get alveg tekið undir hið síðara sem hv. þingmaður sagði, þ.e. að það sé okkur til hagsbóta að góðar samgöngur séu í borginni. Ég er t.d. mikill áhugamaður um að Sundabrautin verði gerð sem allra fyrst vegna þess að hún skiptir miklu máli fyrir okkur sem búum í Norðvesturkjördæmi. Hún skiptir miklu máli fyrir Reykjavík sem borg en það skiptir jafnframt landsmenn alla miklu að góðar samgöngur séu við borgina.

Ég ætla ekkert að segja meira um þessi mislægu gatnamót. Það liggur fyrir hver niðurstaðan er og ég virði hana. Mér hefur t.d. ekki fundist að umferðarhnúturinn á leið um borgina væri þar en hins vegar veit ég að þar hafa orðið miklir árekstrar. Það er full ástæða til þess að lagfæra þetta og ef menn telja að þetta séu þær umbætur sem þar þarf, nú þá það.