Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.
Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):
Herra forseti. Málaflokkurinn samgöngumál er sundurgreindur í ákveðna þætti. Einn þátturinn er umferðaröryggi og gerð er grein fyrir því í þessu plaggi hvernig það er skilgreint. Þar er talað um aðgerðir vegna hraðaksturs og vegna bílbeltanotkunar, eftirlit með þessum þáttum, áróður og fræðslu. Það er talað um leiðbeinandi hraðamerkingar á þjóðvegum og eyðingu svartbletta. Talað er um eftirlit, áróður og fræðslu vegna ölvunar og fíkniefna, talað um umferðaröryggi í öryggisstjórnun fyrirtækja, umferðaröryggi í námskrá grunnskóla og leikskóla, öryggisbeltanotkun í hópbifreiðum, forvarnir erlendra ökumanna og fleira get ég talið, svona get ég lengi talið. Þetta eru þeir ákveðnu þættir sem falla undir fyrirsögnina Umferðaröryggi. Það er í þessa hluti sem hæstv. ráðherra er að setja 385 milljónir á ári í fjögur ár, samtals 1.540 milljónir, og það er þetta litla svið af heildarpakkanum sem ég beini sjónum mínum að. Mér finnst í sjálfu sér að ekki sé hægt að álasa mér fyrir það þó að ég fletti upp á þessum kafla í samgönguáætluninni og geri hann að sérstöku umtalsefni.
Ef hæstv. ráðherra væri sammála hv. þingmanni um að öll samgönguáætlunin væri umferðaröryggisáætlun mundi hann nefna niðurstöðutölur samgönguáætlunarinnar eða vegáætlunarinnar í heild þegar hann talar um umferðaröryggismálin. En hann nefnir 385 milljónir í fjögur ár, 1.540 milljónir, það er hans umferðaröryggisáætlun og það er hún sem ég gerði að umtalsefni án þess að vilja draga úr því að auðvitað eru vegaframkvæmdir að stórum hluta til með þeim hætti að þær auka öryggi okkar í umferðinni. Það er sýnt og skárra væri það nú ef þær væru það ekki.