131. löggjafarþing — 108. fundur,  12. apr. 2005.

Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.

721. mál
[18:34]

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Við ræðum hér vegáætlun og það er ánægjulegt að sjá hversu miklar framkvæmdir eru í gangi, hversu mikið við erum að byggja af vegum, brúm og jarðgöngum í landi sem er svo dreifbýlt.

Á síðu 65 í vegáætluninni er ákvæði sem ég las upp fyrr í dag um Reykjavíkurflugvöll þar sem gert er ráð fyrir að byggt verði flughlað og síðan ný flugstöð og eins og kom fram áðan kostar hún sennilega 2–3 milljarða. Þetta er dálítið merkilegt.

Einhvern tímann á stríðsárunum var hér hernámslið Breta og þeir tóku þá ákvörðun, sem í huga þeirra var örugglega rétt, að byggja flugvöll í Vatnsmýrinni. Þeir notuðu Rauðhólana til að fylla upp í hann og það var örugglega rétt ákvörðun. Sama gerði Bandaríkjaher í Keflavík. Við sitjum uppi með þessar ákvarðanir í dag, endalaust. Einhvern tímann var klæðningin orðin slæm, fyrir svona 10 árum, og þá þurfti að endurnýja klæðninguna. Það leiddi til þess að byggður var nýr flugvöllur í Vatnsmýrinni, algjörlega nýr flugvöllur, bara sisvona. Ég man ekki til þess að tekin hafi verið ákvörðun um það. Menn voru sem sagt að byggja á gömlum ákvörðunum Breta og byggðu nýjan flugvöll. Nú á að fara að byggja flugstöð við flugvöllinn. Þá verða komnir 5–7 milljarðar í þetta dæmi og þá verður væntanlega ekki hægt að hætta við af því að búið er að setja svo mikla peninga í það. Menn taka endalaust skilyrtar ákvarðanir um eitthvað sem er háð einhverju sem tekin var ákvörðun um áður. Mér sýnist að Bretar hafi mjög mikil áhrif á framtíðarþróun Reykjavíkur um alla framtíð.

Herra forseti. Bankarnir lækkuðu vexti síðastliðið sumar. Hvað kemur það þessu máli við? Þangað til hafði Íbúðalánasjóður lánað nær eingöngu til íbúðalána lán með hámarki. Hámarkið olli því að verð á íbúðum var nokkurn veginn það sama, hvort sem íbúðin var stór eða lítil, hvort sem hún var nálægt Reykjavík, í miðbænum eða lengst í burtu. Menn höfðu ekki getu til að borga nema ákveðið verð. Þegar bankarnir komu með ótakmörkuð lán hækkaði verðið þar sem fólkið vildi búa, einmitt hérna í 101 Reykjavík. Af hverju er ég að tala um þetta? Vegna þess að þessir lágu vextir munu reka Reykjavíkurflugvöll burt úr Vatnsmýrinni. Hún er allt of dýrmæt til þess. Hún er orðin svo dýrmæt núna að ég giska á að hægt sé að selja landið fyrir 50–100 milljarða, sérstaklega ef menn notuðu sæmilegt nýtingarhlutfall. Þá er auðvitað ljóst að sá kostnaður við að byggja nýjan flugvöll upp á 10–12 milljarða er hverfandi. Þetta er það sem menn eiga að gera, sérstaklega ef þeir vilja sýna sanngirni. Þessu eiga landsbyggðarþingmenn að berjast fyrir, að landið sé selt og byggður nýr flugvöllur rétt fyrir utan Reykjavík. Ég fellst alveg á að Keflavíkurflugvöllur er engin lausn fyrir landsbyggðina. En það eru margar leiðir, margir staðir í nágrenni Reykjavíkur, mjög nálægt, þar sem hægt er að byggja flugvöll. Það eiga menn að gera. Menn eiga að sýna skynsemi einu sinni í staðinn fyrir að vera alltaf að henda peningum, góðum peningum á eftir slæmum.

Vaxtalækkun bankanna gerir það að verkum að þetta land er orðið mjög dýrt og við megum ekki horfa upp á það ónotað, fyrir utan það að Reykjavíkurflugvöllur tekur ekki bara upp landið, hann lækkar líka alla byggðina í Kvosinni. Það er ekki hægt að byggja þar heldur af því flugvélarnar fara þar svo lágt yfir.

Svo mætti náttúrlega gera jarðgöng, af því að við erum að tala um vegáætlun, frá Snorrabraut að Grensásvegi og selja landið sem er þar fyrir ofan og borga jarðgöngin með því, því að þetta er heilmikið land, það er hálfs kílómetra geil í gegnum Reykjavík sem liggur eftir Miklubraut. Þetta er enn ein hugmyndin.

Þessar aðgerðir valda ekki þenslu og þær kosta ríkissjóð ekki neitt. Það yrði hellingsafgangur. Ég held að ríkið eigi þriðjung af landinu í Vatnsmýrinni. Það gæti jafnvel byggt eitt stykki spítala fyrir afganginn, sýnist mér. Þessir peningar eru teknir út úr atvinnulífinu þannig að þeir mundu virka gegn þenslu en ekki öfugt.

Herra forseti. Þessi umræða hefur snúist um að menn eru að ota sínum tota hver og einn, landsbyggðarþingmenn alveg sérstaklega. Ég vil taka fram, eins og ég hef alltaf gert, að ég nota vegi úti á landi ekki síður en aðrir, kannski eitthvað minna, en ég hef keyrt í gegnum öll jarðgöngin og mér þykir það bara ágætt. Ég nota líka vegi úti á landi og mér þykir það ágætt. Ég vil hafa vegi um landið. Ég tek undir það sem Vestfirðingar segja um bágborið ástand vega þar, ég vil gjarnan geta keyrt um Vestfirði líka, að sjálfsögðu. Þetta er sameiginlegt verkefni okkar allra.

Ég bendi á að þær tillögur sem ég er með hér eru niðurskurður á framkvæmdum í Reykjavík. Ég vil ekki byggja þessa flugstöð í Reykjavík. Ég vil að menn séu framsýnir og fái peninga út úr dæminu, að ríkissjóður fái peninga út úr dæminu, alveg öfugt, og fyrir þá gætum við byggt spítala og jafnvel nokkur jarðgöng úti á landi.