131. löggjafarþing — 109. fundur,  13. apr. 2005.

Staða íslenska kaupskipaflotans.

[14:02]

Dagný Jónsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda, hv. þm. Guðmundi Hallvarðssyni, fyrir að taka þetta mál upp hér. Við höfum heyrt rætt um stöðu kaupskipa gegnum árin og menn hafa reifað áhyggjur sínar. Nú held ég að við séum komin að þeim tímapunkti þar sem ekki er lengur hægt að tala um hlutina, það verður að grípa til aðgerða. Öll undirbúningsvinna hefur verið unnin, fyrir liggur góð og ítarleg skýrsla um stöðu mála og möguleg úrræði. Við verðum að gera okkar til að tryggja að héðan séu gerð út kaupskip undir íslenskum fána.

Við horfum jafnvel upp á það að heil starfsstétt manna leggist niður hérlendis vegna þeirrar þróunar sem hefur átt sér stað. Þegar ungt fólk velur sér menntun lítur það til atvinnumöguleika í framtíðinni. Ekki er hægt að segja að þeir sem mennta sig til flutninga- og farþegasiglinga eigi mikla von um störf hér heima. Þess vegna er brýnt að snúa þróuninni við og að stjórnvöld grípi til aðgerða. Þetta gerist nefnilega ekki einn, tveir og þrír. Við þurfum að standa okkur í samkeppni um að fá skip á skrá og síðan mun hitt fylgja á eftir, menntun, störf og þekking. Við viljum viðhalda því að í landinu sé til staðar öflug menntun og þjálfun á sviði siglinga. Til að það sé hægt verður fólk auðvitað að vilja sækja slíka menntun, og gætu ráðuneyti samgöngumála og menntamála jafnvel komið að slíkri kynningu í ríkari mæli.

Ég skora á hæstv. fjármálaráðherra að beita sér í þessu þjóðþrifamáli. Við verðum að stíga skref í þá átt að Íslendingar geti tekið þátt í samkeppni um alþjóðlega skipaskrá enda eigum við fullt erindi í slíka samkeppni. Við megum ekki láta það gerast að Íslendingar hætti að mennta sig til farmennsku á kaupskipum en það mundi hafa slæm áhrif á umferð sjóflutninga til og frá landinu. Það er ekki eyþjóð til framdráttar.