131. löggjafarþing — 111. fundur,  14. apr. 2005.

Afturköllun þingmáls.

[11:06]

Jóhann Ársælsson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég fagna því að hæstv. ráðherra hefur ákveðið að taka málið til baka. Við höfðum fengið upplýsingar um hvernig að þessum málum hefði verið staðið undanfarin ár og að í raun hefði alls ekki reynt á þessa tryggingastarfsemi eða þörfina fyrir hana. Íslensk fyrirtæki höfðu jafnvel ekki gert sér grein fyrir mikilvægi þess að hafa aðgang að tryggingum af þessu tagi vegna útflutnings. Mér býður í grun að menn hafi kannski lagt á flótta út af einu stóru tapmáli sem upp hefur komið. Þar hefur verið gert ráð fyrir, af þeim sem um hafa vélað fyrir hönd þessa sjóðs, að hægt væri að komast hjá slíku í framtíðinni með samvinnu við aðra aðila í Svíþjóð og kannski víðar.

Hæstv. ráðherra hefur gert grein fyrir því að hann hafi endurskoðað afstöðu sína og talið sig hafa fengið upplýsingar sem bentu til að ekki væri fullreynt það gagn sem gæti af þessu orðið. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það en ég fagna því. Ég tel gott að hæstv. ráðherra hafi brugðist svo skjótt við. Ég taldi að töluverð yrði umræða um þetta í nefndinni og það yrði skoðað vel áður en málið yrði afgreitt þaðan og þar mundu menn takast á um framhaldið. En hæstv. ráðherra hefur höggvið á þann hnút og ég þakka fyrir það.