Álbræðsla á Grundartanga.
Guðjón Guðmundsson (S):
Hæstv. forseti. Ég vil bara við þetta tækifæri fagna þessari stækkun álversins á Grundartanga. Það hefur tekist afskaplega vel til með þetta fyrirtæki. Við munum það sem vorum hér á þingi í aðdraganda byggingar fyrirtækisins að þá voru miklar efasemdir bæði hér og reyndar úti í þjóðfélaginu um hvort eitthvert vit væri í þessu og þetta væri einhver alvara. Hér kom Bandaríkjamaður, Kenneth Peterson, og boðaði að hann vildi byggja þarna 60 þúsund tonna álver og menn hlógu að þessu. Ég minnist þess þegar iðnaðarnefnd Alþingis heimsótti álverið í Straumsvík að þá sagði ónefndur forustumaður í því fyrirtæki svona með bros á vör að þetta væri nú bara heimilisiðnaður. En nú er þetta 60 þúsund tonna álver að stækka í 260 þúsund tonn og það er auðvitað sérstök ástæða til þess að fagna því og ekki bara fyrir okkur sem búum í nágrenninu heldur Íslendinga alla.
Það var ótrúleg andstaða við byggingu þessa álsvers á Alþingi eins og reyndar alltaf þegar minnst er á álver eða stóriðju. Þá fá sumir hv. þingmenn hnút í magann. Þetta eru nánast trúarbrögð hjá tilteknum þingmönnum, sérstaklega Vinstri grænum. Ég minnist þess að einn ágætur þingmaður þess flokks sagði hér síðast þegar verið var að ræða stækkun álversins á Grundartanga að það væri svo hættulegt að vinna í álverum því að menn gætu fengið krabbamein af því. Ég spurði hana þá hvort hún væri tilbúin að koma á vinnustaðarfund á Grundartanga og í Ísal og gera fólki grein fyrir þessu þannig að það vissi um hvað þessi vísindi snerust. Hún var nú ekki tilbúin til þess.
Hér var líka mikið rætt um að þarna yrði gríðarleg mengun, vatnið úr Akrafjalli yrði ódrekkandi og ekki yrði lífvænlegt í nágrannabyggðum. Staðreyndin er sú í dag að mengun þarna er langt undir öllum viðmiðunarmörkum og langt undir því í raun sem menn spáðu. Hún er nánast engin.
Það hefur verið gríðarleg ásókn í störf í þessu fyrirtæki. Þegar það fór af stað og auglýst var eftir starfsmönnum komu um 1.100 umsóknir. Núna er verið að fjölga þarna í næsta mánuði eða þarnæsta um einhver 70 störf og þeir höfðu úr 300 umsóknum að velja þannig að fólk vill starfa þarna og það segir kannski meira en svona bölsýnistal eins og við höfum hlustað á hér.
Fyrirtækið hefur líka auglýst að íbúar norðan Hvalfjarðar gangi fyrir með störf þarna. Ef ég veit rétt eru milli 80% og 90% starfsmannanna búsettir á því svæði. Þetta hefur náttúrlega skipt gríðarlegu máli fyrir byggðirnar norðan Hvalfjarðar, fyrir Akranes og Borgarnes og sveitirnar þar á milli enda sjáum við að eftir að ekki hafði verið byggt eitt einasta hús á Akranesi í fimm ár þá er byggt þar núna sem aldrei fyrr vegna þess að fólk er að flytja á svæðið út af þessu. Sams konar uppbygging er líka að hefjast í Borgarnesi og þessar verksmiðjur á tanganum eiga náttúrlega stærstan þátt í því að fólk býr á öllum jörðunum þarna í sveitinni. Það getur haft þarna aukatekjur og vill búa í sveitinni og þetta hefur verið mjög góð sending fyrir alla byggð á þessu svæði. Þess vegna finnst mér ótrúlegt þegar menn eru að tala hér um að þetta sé þensluvaldandi. Hvaða þensla skyldi nú vera á þessu svæði ef þetta hefði ekki komið til? Þetta er í raun eini ljósi punkturinn í atvinnumálum svæðisins norðan Hvalfjarðar í háa herrans tíð og var náttúrlega, ef svo má segja, himnasending.
Þetta fyrirtæki og reyndar báðar verksmiðjurnar á Grundartanga hafa líka verið frá upphafi í mjög mikilli sátt við umhverfið. Fólkið á svæðinu er mjög ánægt með þær og þær hafa lagt sig fram um að vera í góðri sátt og standa vel að málum og gagnrýni á þessa starfsemi frá nágrönnum er nánast ekki til. Þetta hefur einnig leitt af sér að þarna er komin stórkostleg hafnarstarfsemi. Höfnin á Grundartanga er að verða einhver mesta útflutningshöfn landsins og ekki er langt í að þangað komi að meðaltali eitt skip á dag. Eftir sameiningu hafnanna við Faxaflóa, Reykjavíkur, Akraness og Grundartanga, eru allar líkur á að þessi höfn muni í stórum stíl taka við verkefnum frá Reykjavík og verða helsta útflutnings- og innflutningshöfn landsins.
Hv. þm. Jóhann Ársælsson ræddi nokkuð um hvert tekjur af þessum stóriðjufyrirtækjum renna. Ég get út af fyrir sig alveg tekið undir að það er íhugunarefni hvort eðlilegt sé að gríðarlegar tekjur af slíkum fyrirtækjum lendi í einu pínulitlu sveitarfélagi. Ég minnist þess að þegar til stóð að byggja kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði á sínum tíma var það í frumvarpinu um hana að tekjurnar af verksmiðjunni dreifðust á sveitarfélögin á svæðinu sem mundu veita fyrirtækinu þjónustu. Þetta tel ég að sé íhugunarefni og þurfi að skoða og það var reyndar rætt hér með tilkomu þessarar verksmiðju á Grundartanga. En allt var það nú gert í svo miklum flýti að ekki var tími til að fara betur ofan í það. Auðvitað sækja viðkomandi sveitarfélög það fast að halda sínu en þetta er alveg þess virði að skoða.
Hv. þm. Jón Bjarnason verður seint sakaður um kjördæmapot. Það er alloft sagt að landsbyggðarþingmenn séu að ota tota síns kjördæmis. Hv. þingmaður talar af krafti og sannfæringu gegn atvinnuuppbyggingu í kjördæmi sínu og þarf kjark til. Hann finnur þessu allt til foráttu. Síðast þegar við ræddum þetta var það mengunin og þá var verið að eyðileggja Þjórsárver, sem var náttúrlega út í hött vegna þess að þá stóð reyndar til að sækja vatnið í Norðlingaöldu en ekki Þjórsárver. En nú er hættan ruðningsáhrif og hv. þingmaður talaði sig upp í að þetta mundi ryðja burt vegaframkvæmdum. Það koma því alltaf einhverjar nýjar kenningar til að notast við til að vera á móti.
Ég veit ekki hvort hv. þingmaður hefur svarað því alveg beint: Er hann á móti stækkun álversins? Hann sagði áðan að hann væri á móti álverum, en nú er álverið á staðnum og almenn ánægja með það, og mér finnst að hann verði að svara því, ekki síst þar sem hann er þingmaður kjördæmisins, hvort hann er á móti því að álverið á Grundartanga stækki.
Hv. þingmaður nefndi að þetta væri mesta þenslusvæði landsins. Ég tel það alveg út í hött. Ég tel það einmitt sérstaklega jákvætt að eitthvað af þenslunni skuli fara út fyrir Reykjavík. Eins og ég sagði áðan er það fólkið norðan Hvalfjarðar sem situr fyrir með vinnu þarna og það hefur leitt til gríðarlegrar uppbyggingar á svæðinu. Skyldi það nú ekki bara vera jákvætt að einhvers staðar byggðist upp annars staðar en í Reykjavík og Kópavogi? Ég bara spyr.
Hv. þm. Jón Bjarnason sagði líka að þetta hefði rutt öðrum iðnaði burt. Hann nefndi skipasmíðastöðina á Akranesi. Ég þekki nokkuð vel til þar, var þar starfsmaður þegar járnblendiverksmiðjan á Grundartanga var byggð í lok áttunda áratugarins. Menn voru dálítið svartsýnir þá, ekki er því að neita. Það fóru margir afbragðsmenn frá fyrirtækinu til starfa á Grundartanga. En á móti kom auðvitað að fyrirtækið fékk mikið af verkefnum og hefur haft alla tíð síðan mjög mikið af verkefnum, bæði frá járnblendiverksmiðjunni og síðan álverinu. Eftir að skipasmíðar lögðust af held ég að þetta hafi verið afskaplega góð sending fyrir a.m.k. þetta fyrirtæki að fá slíkan viðskiptavin þarna í nágrennið sem er góður viðskiptavinur og stendur í skilum.
Síðan sagði hv. þingmaður að nær væri að setja upp háskólasetur í Fjölbrautaskólanum á Akranesi en vera að þessum ósköpum. En það er nú svo með skóla og annað sem ríkið rekur að það þarf einhverjar tekjur til að standa undir því, skólar einir og sér skapa ekki gjaldeyristekjur. Þarna verða til mjög miklar útflutningstekjur og allt gott um það og kannski verður það til þess að hægt verði að efla þann ágæta skóla sem er mikil fyrirmyndarstofnun.
Hv. þingmaður nefndi það líka að ferðaþjónustan skilaði miklu meiru en álver, nær væri að fara út í ferðaþjónustuna í auknum mæli. Ég spyr hv. þingmann: Hefur hann kynnt sér tekjur manna annars vegar í ferðaþjónustu og hins vegar í stóriðju? Staðreyndin er sú að meðaltekjur manna í stóriðju eru einhverjar þær hæstu sem gerast. Það hefur t.d. verið kannað á Vesturlandi að þær koma næst tekjum sjómanna. Eftir því sem ég best veit eru störf í ferðaþjónustu hins vegar almennt lágtekjustörf þannig að ég held að það sé rangt mat hjá hv. þingmanni að stóriðjan sé verri en ferðaþjónustan hvað það varðar.
Síðan ræddi hv. þingmaður aðeins um skipasmíðaiðnaðinn. Þó að það falli kannski ekki undir það mál sem hér er á dagskrá minni ég á að hæstv. fjármálaráðherra svaraði fyrirspurn minni í gær um aðgerðir ríkisvaldsins í framhaldi af skýrslu ágætrar nefndar sem hæstv. iðnaðarráðherra skipaði til að gera úttekt á stöðu skipaiðnaðarins. Hæstv. fjármálaráðherra tók mjög jákvætt undir það að nú stæði til að taka á þessum málum og það væri í vinnslu, þannig að ég held að við ættum að fagna því.
Svo fannst mér það ekki sanngjarnt hjá hv. þingmanni að vera að tala um þekkingarleysi hæstv. iðnaðarráðherra, koma hér í andsvari og dæla á hana alls konar spurningum, m.a. um kostnað einkafyrirtækis á Grundartanga og skilja síðan ekkert í að hæstv. iðnaðarráðherra skuli ekki geta svarað þessu og vera með þetta allt í kollinum. Þetta var auðvitað bara efni í fyrirspurn á Alþingi en alls ekki í andsvar.
Ég ítreka að ég fagna þessari stækkun og það er stórmál fyrir byggðirnar norðan Hvalfjarðar og reyndar stórmál fyrir þjóðarbúið allt að þetta fyrirtæki skuli vaxa og dafna með þeim krafti sem það gerir. Þetta stóreykur útflutnings- og gjaldeyristekjur og annað hitt að Grundartangi er staður tækifæranna. Við sjáum það að þarna er starfsemin stanslaust að aukast, bæði verksmiðjur og hafnarstarfsemi. Nú liggur í loftinu að þarna komi ný verksmiðja. Það eru miklir möguleikar á Grundartanga. Þarna er nóg landrými, góður aðgangur að raforkumannvirkjum, fín höfn og mikið vinnuafl eins og hefur komið fram þegar álverið hefur verið að auglýsa störf að fólk vill vinna þarna við þessi störf, og ég tek meira mark á því en svartagallsrausi einstakra hv. þingmanna.