Álbræðsla á Grundartanga.
Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):
Frú forseti. Það þurfti í sjálfu sér ekki að koma á óvart þó að hv. þm. Guðjón Guðmundsson líti bara á sig sem þingmann Akraness og næsta nágrennis og að það sem gerist þar skipti ekki máli út fyrir það svæði. Ég lít fyrst og fremst á þetta í stærra samhengi og rakti þá umræðu sem yfirvöld peningamála, samtök atvinnulífsins og hinna ýmsu atvinnugreina tengjast, en líka gagnvart þeirri efnahagsþróun og stöðu sem er í dag, háu gengi, háum stýrivöxtum Seðlabankans og vaxandi viðskiptahalla. Og rökin þar eru einmitt stóriðjuframkvæmdir sem séu undirrót þenslunnar, þó svo að þau séu eins og nú stendur ekki nema kannski ríflega helmingur þeirra raka. Þess vegna skiptir máli ef stórframkvæmdir eða stór verkefni eru að koma inn hvenær á næstu árum þau koma.
Ég er ekkert viss um ef maður færi vestur á firði að þar væru menn endilega sammála því að þar væri nauðsynlegt að skera niður vegaframkvæmdir til að skapa rými fyrir stóriðjuframkvæmdir, eins og rök ríkisstjórnarinnar hafa verið. Ég horfi á þetta mál heildstætt og lít á það þannig og er fyrst og fremst að spyrja um hvort menn hafi áttað sig á því í hvaða tímaröð verið er að gera hlutina og hvort einhver önnur tímaröð hefði kannski verið hentugri, það er fyrst og fremst það sem ég er að tala um.
Að sjálfsögðu skiptir svona fyrirtæki máli á sínu nærsvæði, annað hvort væri nú. En þjóðhagslegur ábati álvera hefur ekki verið talinn (Forseti hringir.) neitt mikill og er reyndar talinn sáralítill.