131. löggjafarþing — 111. fundur,  14. apr. 2005.

Kynþáttafordómar og aðgerðir gegn þeim.

[13:45]

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Margar ástæður eru fyrir því að kynþáttafordómar koma fram. Ein ástæða er ótti. Ótti við að ókunn menning skaði eða jafnvel ryðji burt innlendri menningu, ótti við að missa störf vegna undirboða eða ótti við vaxandi áhrif hóps manna, oftast erlendra. Þessi ótti er oftast byggður á vanþekkingu eða misskilningi, stundum hreinlega tungumálaörðugleikum. Vissir aðilar geta svo kynt undir slíkum fordómum sér til framdráttar. Stundum eru fordómarnir gagnkvæmir, líka á milli hópa. Pólverji er jafnmikill útlendingur í augum Tælendings og Íslendings.

Aðgerðir felast í því að upplýsa hópana um menningu hvers annars og í kennslu í tungumáli búsetulands, þ.e. íslensku, eins og gerð er krafa um í nýlegri lagasetningu. Þetta er nýtt vandamál sem við þurfum að taka á með t.d. aukinni fræðslu til barna og unglinga. Undirstrika þarf jákvæð áhrif erlends fólks á starfsþekkingu, menningu og listir.

Mjög mikilvægt er að berjast gegn kynþáttafordómum því skelfilegustu voðaverk sögunnar hafa verið unnin í skjóli slíkra fordóma. Þegar við tölum um og tökum afstöðu til útlendinga skulum við líka minnast þess að við breytumst í útlendinga þegar við förum erlendis.