Starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða.
viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir jákvæð viðbrögð við þessu máli, enda held ég að þetta sé kærkominn kostur inn á markaðinn. Með því að markaðir setji sér sjálfir reglur — það er það sem hv. þingmaður hafði efasemdir um og það er vissulega eðlilegt að spurt sé um það — næst meiri sveigjanleiki. Fjármálaeftirlitið hefur þarna hlutverki að gegna, eins og í svo mörgum öðrum tilfellum. Það þarf líklega að staðfesta reglurnar, hefur a.m.k. það miklu hlutverki að gegna í sambandi við eftirlit með viðkomandi markaðstorgi. Í þessu tilfelli þarf, eins og ávallt, að fara yfir vissa hluti í nefndinni en við byggjum þetta að verulegu leyti á væntanlegri tilskipun sem vissulega er ekki komin enn þá. Því höfum við einhvern tíma til þess að undirbúa innleiðingu hennar. Hún mun koma og frumvarpið er þá komið fram og væntanlega búið að setja lög sem eru í samræmi við þá tilskipun. Það er svo sem ekkert verra að vera einstaka sinnum á undan tilskipununum.