131. löggjafarþing — 111. fundur,  14. apr. 2005.

Starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða.

708. mál
[14:34]

Jón Gunnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin, eins langt og þau náðu. Meiri sveigjanleiki, sagði hæstv. ráðherra, með því að stjórnir þessara fyrirtækja setji reglurnar. Það þýðir þá líka mismunandi umhverfi. Væntanlega þýðir það þá enn fremur að fjárfestar sem eru að velta því fyrir sér að eiga viðskipti í gegnum svona fyrirtæki geti ekki gengið að því sem vísu að samræmdar reglur gildi á markaðnum fyrir öll þessi fyrirtæki.

Rétt til að rifja upp kannski varðandi fiskmarkaði, uppboðsmarkaði með fisk, var það og er þannig í lögum í dag að fiskmarkaðirnir setja sér reglur sem sjávarútvegsráðherra staðfestir. Nú liggur fyrir þinginu frumvarp þar sem ráðherra telur reynsluna af þessu ekki nægilega góða, jafnvel þó að hann hafi þurft að staðfesta reglur einstakra fiskmarkaða, og ætlar sér að setja samræmdar reglur fyrir alla fiskmarkaði á landinu með þessu nýja frumvarpi. Það væri kannski rétt hjá hæstv. ráðherra að spjalla við sjávarútvegsráðherra um reynsluna af uppboðsmörkuðum, lögunum þar og reglunum sem þeir voru að setja sér, hver og einn, áður en við gerum það að lögum hér að fyrirtæki sem reka markaðstorg geti sett sér sínar eigin reglur.

Varðandi ESB-tilskipun sem er á leiðinni er alveg rétt með þessar reglur um markaðstorg, þ.e. „multilateral trading facility“ eins og segir í greinargerðinni, að stundum getur verið betra að vera á undan en á eftir. Við hljótum þó að setja hér lög sem þessi tilskipun fellur þá inn í þegar hún kemur.

Jafnframt sagði hæstv. ráðherra hér þegar ég var að spyrja hvort ekki væri rétt að ráðherra mundi staðfesta reglur að líklega mundi Fjármálaeftirlitið gera það. Það fannst mér ekki nægjanlega ákveðið svar og bið hæstv. ráðherra að hnykkja betur á að það sé þá þannig að þegar stjórnir eru búnar að setja reglur muni Fjármálaeftirlitið þurfa að setja stimpil sinn á þær þannig að fjárfestar geti treyst því að rétt sé að öllu staðið.