Starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða.
viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):
Hæstv. forseti. Ég þakka þær viðtökur sem frumvarpið fær, bæði frá stjórnarsinnum og stjórnarandstæðingum. Það gleður mig. Ég er sannfærð um að hér er hreyft mikilvægu máli. Ég tel að þetta frumvarp gæti hugsanlega leitt af sér góða hluti.
Þær ábendingar sem hér hafa komið fram eiga allar rétt á sér. Hugmyndir hv. þingmanns í sambandi við skattafslátt hafa í raun verið eitt af því sem rætt hefur verið um í tengslum við nýsköpun og það að efla sprotafyrirtæki, hvernig hægt sé að nota til þess skattkerfið og hvort ástæða væri til að hafa skattafslátt í því sambandi. Það sem hér kom fram var vissulega allrar athygli vert, þ.e. þar sem vísað var til London Stock Exchange. Ég mun skoða það frekar í framhaldinu.
Ég vil halda því til haga að þrátt fyrir að Nýsköpunarsjóður hafi tapað peningum þá er ekki eins og það sé einsdæmi hjá sjóði á borð við Nýsköpunarsjóð. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að mikil áhætta felst í því að kaupa í ungum fyrirtækjum sem eru að stíga sín fyrstu spor.
Fram til þessa hefur í raun verið ákveðin gjá í nýsköpuninni. Að einhverju leyti hefur hún verið brúuð með nýja Tækniþróunarsjóðnum, sem ég bind gríðarlega miklar vonir við. Nýsköpunarsjóður hefur tapað peningum sem er mjög í samræmi við það sem maður heyrir frá öðrum löndum og það hvernig tekist hefur til með aðra sjóði sem hafa haft svipað hlutverk. Hann hefur hins vegar gert mikið gagn. Ég veit að það er mikill áhugi á því af hálfu stjórnarflokkanna að styrkja Nýsköpunarsjóðinn þannig að hann sé betur fær um að sinna hlutverki sínu. Það er eiginlega forgangsmál í mínum huga.
Eins og kom fram í ræðu minni þá höfum við sett af stað vinnu í ráðuneytinu til að fara yfir það hvernig við getum á sem skynsamlegastan hátt bætt stöðu nýsköpunar með því að efla hana hvað varðar peningahliðina.
En ég er ánægð með þessar viðtökur og vonast til að frumvarpið verði að lögum í vor. Ég tel það raunar mjög mikilvægt.