Umgengni um nytjastofna sjávar.
Jón Gunnarsson (Sf):
Frú forseti. Ég flyt hér seinni ræðu mína í umræðu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. þingmanni og formanni sjávarútvegsnefndar, Guðjóni Hjörleifssyni, fyrir að halda ræðu — sem ég veit ekkert hvort hann ætlaði sér en hann gerði það a.m.k. — því annars hefði ég ekki fengið að halda síðari ræðu mína miðað við reglur sem gilda á þinginu. Ég held að full ástæða sé til að menn taki það til skoðunar ef það er svo að þingmaður, sem hefur rétt til að taka tvisvar til máls í ákveðnu máli við 1. umr., ef enginn kveður sér hljóðs eftir fyrri ræðu hans, fái ekki að taka til máls aftur og flytja seinni ræðu sína. Mér þykir svolítið undarlegt ef hægt er að taka þann rétt af þingmanni með því að enginn sýni málinu áhuga.
Þá kem ég að efnisatriðum. Ég fór í fyrri ræðu yfir 1. gr. þessa frumvarps. Mér er ekki nærri því eins mikið niðri fyrir varðandi 2. gr. og 1. gr. Þar voru gerðar þær breytingar að lagðar voru auknar skyldur á útgerð og skipstjóra fiskiskips til að fylgjast með stöðu aflaheimilda á skipum sínum með hliðsjón af úthlutuðum aflaheimildum, flutningi aflaheimilda og lönduðum afla. Það er fyrri viðbótin við lagatextann í núverandi lögum. Ég velti aðeins fyrir mér, varðandi útgerðina og skipstjórann, hvernig ábyrgðin skiptist á milli þeirra miðað við orðanna hljóðan eins og þarna er, hvort báðir beri jafnmikla ábyrgð eða hvort þeir beri mismunandi ábyrgð á að fylgst sé með stöðu aflaheimilda á skipunum. Það hlýtur að skipta máli hvort útgerðarmaðurinn og eigandinn, sem heldur skipinu til veiða og er þar af leiðandi vinnuveitandi og yfirmaður skipstjórans, ber meiri ábyrgð í þessu tilviki en skipstjórinn, sem er kannski launþegi hjá viðkomandi útgerðarmanni og telur sig þurfa að fara að fyrirmælum yfirboðara síns.
Því er síðan bætt á útgerðirnar í landinu að þær skuli bera kostnað af símskeytum og öðrum tilkynningum sem þeim eru sendar eftir þessari grein laganna, þ.e. ef Fiskistofa sendir þeim skeyti um að aflaheimildir þeirra séu ekki í lagi þá skuli útgerðin bera kostnaðinn sem af því hlýst. Það er heimilt að bæta þeim kostnaði við gjald sem greitt er fyrir tilkynningu um flutning aflamarks til viðkomandi skips. Eins og hv. þingmenn vita þá greiða útgerðir gjald fyrir það að skrá aflaheimildir á skip eða færa aflaheimildir á milli. Nú má bæta við það gjald kostnaði af símskeytum og kannski ástæða til að spyrja hæstv. ráðherra hvort menn hafi þarna einhvern annan kostnað í huga, hvort það er eingöngu kostnaðurinn við að senda símskeyti, samkvæmt gjaldskrá Símans væntanlega, eða hvort þar komi til viðbótarkostnaður vegna vinnu og umstangs sem óneitanlega hlýst af því í starfsemi stofnunarinnar að þurfa að senda út svona tilkynningar. Er þetta hreint og klárt kostnaðurinn við að senda símskeytið á símalínum eða kemur vinna embættismanna við þetta inn í gjaldið samkvæmt hugmyndum ráðherra?
Ráðherra á að setja nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis. Gott væri að fá að heyra hverjar þær gætu orðið. Eins væri gott ef hæstv. ráðherra hefði upplýsingar um heildarkostnaðinn af símskeytum undanfarin ár þannig að við getum gert okkur í hugarlund hvaða auknar álögur er verið að leggja á útgerðir, sem væntanlega hafa takmarkaða kvótastöðu því að það er helst til þeirra sem þarf að senda svona skeyti.
Aðeins að 1. gr. aftur, þar sem mér tókst ekki alveg að klára fyrri ræðu mína innan tímamarka. Maður veltir því óneitanlega fyrir sér, eins og ég sagði í ræðunni, hvað kallar á þessa breytingu núna. Ég skil svo sem ósköp vel að menn verði að bregðast með einhverjum hætti við þeim meðafla sem kemur flottroll. Ég sé reyndar í greinargerðinni með frumvarpinu að breytingartillögur um hvernig meðafli skuli metinn til aflamarks má rekja til tillagna frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna og umgengnisnefndarinnar eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra í framsögu hans. Ég velti fyrir mér í fullri alvöru af hverju ekki er hægt í almennum lögum og reglum sem gilda um önnur veiðarfæri að koma því þannig fyrir að útgerðir verði með búnað til að geta starfað í samræmi við þær lagagreinar sem gilda um aðrar veiðar, önnur veiðarfæri og búnað skipa. Það er alltaf undarlegt þegar setja þarf svo sérstakar reglur sem þarna er kveðið á um.
Gott væri einnig að fá að vita, ef hæstv. ráðherra hefur það í höndunum, hver meðaflinn hefur verið á undanförnum árum. Erum við að tala um tugi tonna, hundruð tonna eða þúsundir tonna af fiski sem ekki er uppsjávarfiskur og menn álíta að komið hafi í veiðarfæri þessara skipa? Það hlýtur að hafa verið áætlað í ráðuneytinu eða á einhvern hátt reynt að mæla hve mikill þessi afli er. Að öðrum kosti mundu menn væntanlega ekki að bregðast við þessu vandamáli. Í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:
„Á síðustu kolmunnavertíð jókst meðafli nokkuð og leiddi það til aukinnar umræðu um hvernig með skyldi fara. Er sú tillaga sem hér er lögð fram niðurstaða þeirrar umræðu. Þess skal getið að Fiskistofa hefur í samvinnu við Hafrannsóknastofnunina fylgst vel með löndunum á uppsjávarfiski og liggja fyrir upplýsingar um meðafla tvö síðustu ár.“
Það eru kannski þessar upplýsingar sem ég kalla eftir að hæstv. ráðherra upplýsi okkur um, hver þessi afli er fyrst svona vel hefur verið fylgst með löndun á uppsjávarfiski á undanförnum tveimur árum.
Að endingu, frú forseti, er vert að benda á að hér hefur aðeins farið fram 1. umr. um málið og við sem sitjum í sjávarútvegsnefnd eigum eftir að fá það inn til okkar, velta því fyrir okkur þar og óska eftir umsögnum hagsmunaaðila. Mér sýnist reyndar að búið sé að kalla eftir umsögnum einhverra hagsmunaaðila fyrir fram. Ef þetta byggir á tillögum frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna má reikna með að þeir séu þokkalega sáttir við þetta. Ég veit ekki hvaða aðilar sitja í umgengnisnefndinni, hvort það eru einhverjir frá Landssambandi smábátaeigenda, samtökum sjómanna eða hverjir sitja í henni. Það getur verið, ef það er nokkuð breitt svið innan þeirrar nefndar, að flestir þeir sem fá þetta til umsagnar séu þegar búnir að sjá málið og komi kannski að þessu á fyrri stigum. Ég er í raun ekki að gagnrýna það vegna þess að ég held að oft á tíðum sé hreint og klárt sniðugt að kalla til hagsmunaaðila í undanfara lagasmíðar eða breytinga á lögum, fremur en að gera breytingar í lokuðu herbergi í sjávarútvegsráðuneytinu, leggja fyrir þingið og kalla síðan eftir umsögnum. Oft er það þannig þegar hæstv. ráðherrar eða embættismenn skrifa einhvern texta og hann kemur fyrir þingið að þá er textinn eins og börnin þeirra og lítið má gagnrýna hann eða breyta. Menn vilja halda sig við það sem fyrst var skrifað. Þess vegna held ég að það gæti verið gott, eins og mér sýnist hafa verið gert í þessu máli, að kalla hagsmunaaðila til fyrir fram svo að þeir geti lýst hugmyndum sínum en svo taki náttúrlega ráðherra endanlega ákvörðun um hvað af hugmyndum þeirra eða tillögum rati inn í lagatextann.
Ég vona að hæstv. ráðherra hafi gögn í höndunum til að geta svarað einhverjum af þessum beinhörðu upplýsingum sem ég óskaði eftir varðandi kostnaðinn við símskeytin og hvort um annan kostnað væri að ræða. Eins spurði ég um meðaflann, sem mældur hefur verið eða skoðaður, hvert umfang hans hafi verið á undanförnum árum.