131. löggjafarþing — 111. fundur,  14. apr. 2005.

Umgengni um nytjastofna sjávar.

732. mál
[16:24]

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér nýtt frumvarp til laga um breytingu á lögum umgengni um nytjastofna sjávar. Við ætlum sem sagt að fara út í það að fylgjast grannt með því hver er meðafli skipa sem stunda veiðar með flotvörpu á uppsjávarfiski, kolmunna, síld og loðnu. Reikna á þennan meðafla út eftir kúnstarinnar reglum og draga hann síðan frá eða láta menn skaffa kvóta fyrir meðaflanum.

Hér er enn eina ferðina verið að búa til nýjar reglur í kringum mjög flókið fiskveiðistjórnarkerfi þar sem reglugerðafrumskógurinn er orðinn að þvílíku myrkviði að jafnvel hörðustu kvótasinnum er farið að óa við og menn virkilega farnir að kveinka sér undan þeim stórkostlega eftirlitsiðnaði sem byggður hefur verið upp í kringum sjávarútveginn á mörgum undanförnum árum á valdatíma núverandi fiskveiðistjórnar með gríðarlegum tilkostnaði, tímaeyðslu og öðru því sem fylgir.

Ef við tökum kolmunnaveiðarnar sérstaklega, ég hygg að þetta hafi fyrst og fremst verið vandamál á kolmunnaveiðum sem eru að mestum hluta stundaðar yfir sumarið, og lítum yfir sögu þeirra veiða þá hefur þróunin þar verið ævintýraleg á undanförnum árum. Fyrir tíu árum voru þessar veiðar nánast ekkert stundaðar hér við land en nokkur undanfarin ár höfum við verið að veiða í kringum hálfa milljón tonna af kolmunna, virðulegur forseti. Þarna hefur komið fram nýr nytjastofn sem hefur skipt mjög miklu máli fyrir atvinnulífið víða úti á landi, ekki síst á Suðausturlandi og Austurlandi. Hv. þm. Jón Gunnarsson sagði í ræðu sinni áðan að hinn uppreiknaði meðafli á síðasta ári gæti verið kvóti sem lítið sjávarþorp úti á landi gæti verið fullsæmt af, þ.e. afli í kringum 1.500 tonn af þorski og kannski 2.000 tonn af ufsa.

Það má alveg taka undir þá röksemdafærslu en þá má þingmaðurinn ekki heldur gleyma því að kolmunnaævintýrið hefur skilað byggðum úti á landi alveg gríðarlegum verðmætum og mikilli vinnu á tímum sem áður voru algjörlega dauðir í atvinnulífinu í þessum þorpum. Við megum alls ekki gleyma því. Það er bara staðreynd sem menn verða að viðurkenna.

Ef við lítum á meðaflann hjá þessum skipum í flotvörpu þá hef ég fylgst grannt með þessu á undanförnum árum. Síðustu tvö árin hef ég sent inn fyrirspurnir til skriflegs svars til hæstv. sjávarútvegsráðherra um hversu mikill þessi meðafli væri samkvæmt þessum athugunum sem eru náttúrlega einu gögnin sem við höfum í höndum, samkvæmt þeim athugunum sem eftirlitsmenn Fiskistofu hafa gert. Orðrómur hefur verið á kreiki um að meðaflinn gæti í einhverjum tilvikum verið verulegur og sá orðrómur hefur að sjálfsögðu og sem betur fer leitt til þess að eftirlitsaðilinn, þ.e. Fiskistofa, hefur sent út menn til að mæla þetta og reyna að koma einhverjum tölum á hvað þetta gæti verið mikið.

Ég verð að segja, virðulegur forseti, að þó að þessar tölur virðist kannski við fyrstu sýn vera nokkuð háar, 1.600 tonn af ufsa uppreiknað árið 2003, 2.000 tonn af ufsa árið 2004, þorskur 156 tonn uppreiknað árið 2003 og rétt tæp 1.700 tonn árið 2004 þá verðum við að athuga að þetta er uppreiknaður meðafli úr kolmunnaafla sem er um og yfir hálf milljón tonna. Við erum þá að tala um ekki einu sinni hálft prósent af kolmunnaaflanum sem hefur komið sem meðafli af þessum tegundum nytjastofna. Það er allt og sumt.

Um leið og við rýnum í þessar tölur verðum við líka að hafa það hugfast að menn hafa verið meðvitaðir um þetta vandamál, þetta hefur verið mjög mikið í umræðunni. Lokað hefur verið stórum svæðum, öllum Þórsbanka hefur til að mynda nú verið lokað, sem hefur verið og var fyrstu árin eitt helsta veiðisvæði kolmunnaskipanna yfir sumartímann suðaustur af landinu. Hvers vegna hefur honum verið lokað fyrir veiðum í flotvörpu? Jú, vegna þess að þar var meðafli. Ég veit t.d. til þess að í fyrra óskuðu sjómennirnir sjálfir eftir því að þetta svæði yrði stækkað, vegna þess að sjómennirnir okkar eru þó alla vega þannig innrættir að þeir vilja ekki standa í því að veiða slíkan meðafla sér til gamans eða skemmtunar og landa honum síðan í stórum stíl til bræðslu. Ég bara veit það, ég hef talað við þessa menn og spurt þá að því. Ef þeir lenda í að fá meðafla kippa þeir undantekningarlaust út úr því. Þeir færa sig.

Annað sem mig langar til að minnast á, sem er náttúrlega annar þrálátur orðrómur, er að menn hafi verið að veiða lax í þessi flottroll, jafnvel í stórum stíl. Ég trúi þessu heldur ekki. Laxinn er mjög hraðsyndur fiskur. Hvað eru menn að toga á miklum hraða á kolmunnaveiðum? Vita menn það? Veit hæstv. sjávarútvegsráðherra hver toghraðinn er á kolmunnaveiðunum? Veit hv. þm. Jón Gunnarsson það eða formaður sjávarútvegsnefndar? Hann er u.þ.b. 3,5–4 mílur á klukkustund, innan við 10 kílómetra hraði. (Gripið fram í.) Þetta er skokkhraði.

Það kemur smávegis af ufsa sem meðafli á kolmunnaveiðunum, það er rétt, hv. þm. Jón Gunnarsson. En mér finnst óþarfi að setja enn eina reglu sem flækir fyrir mönnum, gerir mönnum erfitt fyrir við veiðar og eykur kostnað og skriffinnsku. Við eigum miklu frekar að hafa þetta þannig að menn stundi veiðar sínar með þessum veiðarfærum, sem eru fullkomlega lögleg. Það er svo allt önnur umræða hvort réttlætanlegt sé að nota flottroll við síldveiðar og loðnuveiðar. Ég get alveg tekið undir mörg þau sjónarmið og ég hef gagnrýnt þær veiðar á þeim fiskstofnum vegna þess að ég tel að þær séu varhugaverðar, en það er allt önnur umræða, við tölum um meðafla.

Ég tel að það sé miklu betra að hafa þetta þannig að menn fái meðaflann ef þeir lenda í honum. Ég trúi því, eins og ég sagði áðan, ekki upp á menn að þeir séu að þessu að gamni sínu. Ef það verða hins vegar slys komi menn með aflann í land og við höfum þetta þannig að allt sé uppi á yfirborðinu. Þá getum við brugðist rétt við, þ.e. með því að loka svæðum þar sem er meðafli. Það höfum við gert fram að þessu í auknum mæli og eftir því sem reynslan og þekkingin eykst á veiðunum — höfum það hugfast að þetta eru nýjar veiðar — þá ná menn betri tökum á þessu með þeim hætti. Það er engin lausn að setja einhverjar reglur um að menn þurfi að koma með kvóta fyrir aflanum. Ég tel að það bjóði hættunni heim á því að menn hendi aflanum í sjóinn. Ef þeir lenda í einhverju slysi, segjum að skip fengi allt í einu einhverja tugi tonna t.d. af þorski, karfa eða ufsa vaknar hreinlega upp sú freisting, og við eigum að viðurkenna það hreinskilnislega, að áhöfnin dæli því tiltekna hali beint aftur í sjóinn. Erum við eitthvað bættari með það? Nei, við erum ekkert bættari með það. Það er búið að veiða þennan fisk, það er búið að drepa hann. Sami fiskur verður ekki veiddur oftar en einu sinni.

Menn verða aðeins að staldra við og hugsa sinn gang í þessum málum. Það er alveg með ólíkindum að hlusta á sjálfstæðismenn, hæstv. ráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem er flokkur frelsis til athafna og einkaframtaks. Hv. formaður sjávarútvegsnefndar, hv. þm. Guðjón Hjörleifsson, er úr sama flokki. Þeir menn fara hér um og leyfa sér að búa til kerfi sem verður sífellt flóknara, reglur á reglur ofan endalaust. Menn úr þessum flokki, af öllum flokkum, flokknum sem segist hafa barist fyrir frelsi stendur nú fyrir því að leggja endalaus höft á menn, óþarfa reglusetningar út og suður, vanhugsaðar reglusetningar.

Það er verið að tala um að það sé sanngjarnt að krefja menn um kvóta fyrir þeim meðafla sem þeir veiða þegar þeir stunda kolmunnaveiðar. Það má kannski færa röksemdafærsluna í þá átt að það sé sanngjarnt á meðan aðrir séu hundeltir. Ég er á móti því að þeirri röksemdatækni sé beitt með þeim hætti. Ég tel að miklu nær væri að horfa í hina áttina og slaka á klónni hjá þeim sem eru þó hundeltir í dag.

Til hvers erum við til að mynda með kvóta á tegundum sem veiðast alla jafna sem aukaafli við botnfiskveiðar? Hvar er fiskifræðilega röksemdin fyrir því að vera með kvóta á keilu eða löngu eða skötusel? Er til að mynda einhver sérstök fiskifræðileg röksemd fyrir því að vera með kvóta á ufsa? Nei, það eru engar fiskifræðilegar röksemdir fyrir því. Ég tel að menn ættu miklu frekar að reyna að skrúfa ofan af þessu reglugerðarbákni, skrúfa ofan af þeirri ófreskju í staðinn fyrir að koma hingað og bæta enn einni lagasetningunni ofan á þetta, enn einum álögunum á sjávarútveginn, sem má ekki við miklu eins og ástandið er í dag, koma hér og hreykja sér af verkum sínum eins og hv. formaður sjávarútvegsnefndar gerði áðan og sagði að þetta væri einhver stórkostleg lagabót sem mundi auka gegnsæið í greininni. Hvers konar bull er þetta? Verið er að setja tilgangslausar reglur, lög út í loftið sem þjóna engum tilgangi, auka bara á vandræði manna við veiðar sem menn hafa verið að þróa af miklum dugnaði þrátt fyrir að stjórnvöld hafi verið dugleg við að setja stein í götu þeirra, til að mynda með kvótasetningu á kolmunna yfir höfuð, sem var algjör óþarfi og hefur að ég tel skaðað hagsmuni okkar Íslendinga sem þjóðar í að ná stöðu í samningaviðræðum um skiptingu á stofninum. Þetta hefur haft heftandi áhrif á sjávarútveginn, sjávarútvegsfyrirtæki, til að kortleggja til að mynda útbreiðslu kolmunnans, til að kortleggja hvað er mikið af kolmunna í íslenskri lögsögu. Þetta hefur skaðað okkur. Þetta hefur líka skaðað hagsmuni sjávarbyggða sem hefðu getað haslað sér völl í veiðunum, hefðu getað farið út í fjárfestingar í skipum og búnaði, til að mynda í Vestmannaeyjum. Þar misstu menn af hinum svokölluðu viðmiðunarárum, hv. þm. Guðjón Hjörleifsson, formaður sjávarútvegsnefndar, hann heyrir til mín.

Formaður sjávarútvegsnefndar ætti frekar að koma og aðstoða mig í því að slaka á kvótasetningunni í kolmunnanum til að hleypa nýliðum að, til að mynda þannig að útgerðir í Vestmannaeyjum gætu haslað sér völl í veiðunum til hagsbóta fyrir Vestmannaeyinga. Bestu kolmunnamiðin eru rétt austan við Vestmannaeyjar, jafnvel fyrir vestan Eyjar líka. Það er eitt ruglið, það er bannað að stunda kolmunnaveiðar fyrir vestan Vestmannaeyjar af því að menn eru svo hræddir við meðafla. Samt sem áður hafa menn ekkert fast í hendi, engar rannsóknir eða neitt sem segja að það sé einhver sérstök hætta á meðafla þar, það er bara bannað. Af hverju? Af því bara.

Svona hlutir fara í taugarnar á mér. Það er verið að auka á vitleysuna og menn taka undir með húrra hrópum og klappi og finnst þetta flott. Þetta þjónar engum tilgangi, við erum ekki að þjóna hagsmunum heildarinnar, við þjónum ekki hagsmunum þjóðarinnar með þessu. Það er miklu betra að láta þetta bara eiga sig eins og þetta er, fá aflann á land, þá sjáum við hvort það hafi verið vandræði með meðafla eða ekki og bregðumst rétt við, þ.e. með því að loka svæðum. Eins og ég sagði áðan og segi enn og aftur: Sjómennirnir okkar eru ekki að gera sér það að leik að veiða þorsk, ýsu og ufsa og karfa í bræðslu. Þetta eru slys sem menn lenda í úti á miðunum og ber að taka þeim sem slíkum. Við erum ekki að rústa neinum fiskstofnum þó að þetta gerist og við eigum að bregðast við því með skynsemi, með því að loka svæðum. Menn eru heldur ekki að veiða lax í stórum stíl í flottroll.

Skoðum veiðitölur yfir lax á Íslandi undanfarin ár, virðulegi forseti. Ég er með nýjustu tölur frá Veiðimálastofnun fyrir framan mig. Frá því að flottrollsveiðar hófust á kolmunna við Ísland eða flottrollsveiðar yfir höfuð hefur laxgengd verið að aukast í ár. Heildarlaxveiði hefur verið að aukast jafnt og þétt frá árinu 2000. Veiðin í fyrra var ein sú besta frá 1974, langt yfir meðaltali. (Gripið fram í.) Það skiptir engu máli hvort litið er á stangveiði eða netaveiðar, hvað sem er, veiðin var langt yfir meðaltali í fyrra. Á sama ári hafa aldrei verið jafnmiklar veiðar í flottroll hér við land. Ef menn hefðu verið að moka upp laxi í stórum stíl í flottroll sæjum við ekki þessar tölur í veiðiánum okkar, það held ég að sé alveg ljóst.

Menn verða að gæta sín á því að láta ekki plata sig út í svona vitleysisgang í lagasetningum af einhverri hræðslu og móðursýki vegna þess að einhverjir aðilar eru kannski að djöflast í þeim. Menn eru kannski að leggja eyrun allt of mikið við kjaftasögum. Eins og ég segi, Fiskistofa hefur verið að mæla hversu mikið af meðafla hefur komið að landi. Þau gögn, fyrirspurnir tvö ár í röð frá mér benda ekki til þess að þetta hafi verið vandamál. Á sama tíma hafa menn verið að auka við svæðalokanir. Sjómenn sem ég hef talað við á kolmunnaskipunum, skipunum sem nota flottroll, ræða þetta opinskátt við mig. Ég trúi þeim. Þeir eru ekki að plata, þeir eru ekki að ljúga. Ég segi enn og aftur og ítreka það: Menn eru ekki að gera þetta að gamni sínu.

Fyrst frumvarpið er komið svona langt, það er búið að fara í 1. umr. og á að fara í sjávarútvegsnefnd, legg ég til að það fari í sjávarútvegsnefnd og verði hreinlega svæft þar, það fari hreinlega ekki út úr nefndinni aftur. Svo skulum við taka umræðuna í fullri hreinskilni með sjómönnum og fara yfir hvar þetta hefur verið vandamál og segja síðan við strákana um borð í bátunum: Þið látið okkur vita ef þið lendið í meðafla og við tökum á því þegar þar að kemur, til að mynda með lokun svæða. Ég er alveg viss um að þeir munu verða fyrstir til að fallast á að það sé skynsamlegt, því að eins og ég segi, íslenskir sjómenn gera það ekki að gamni sínu að veiða þorsk, ýsu, ufsa eða lax í bræðslu. Það er alveg á hreinu.