131. löggjafarþing — 111. fundur,  14. apr. 2005.

Umgengni um nytjastofna sjávar.

732. mál
[16:58]

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. sjávarútvegsráðherra sagði áðan eitthvað á þá leið að með þessari lagasetningu væri m.a. brugðist við þrálátum orðrómi.

Gegn því vil ég einungis segja eitt. Það er afskaplega vond stjórnsýsla sem byggist á því að hlaupa eftir kjaftasögum utan úr bæ. Það er arfavond stjórnsýsla og að ætla að fara að beita því sem réttlætingu fyrir lagasetningu er enn verra. Það er eiginlega svo vont að það tekur varla tali. Manni verður hreinlega orða vant.

Ég fór yfir það í ræðu minni áðan að það er ekki að sjá á neinum opinberum gögnum að upp hafi komið slík vandamál að þau réttlæti lagasetningu. Það liggja fyrir tvær fyrirspurnir frá mér til hæstv. sjávarútvegsráðherra, sem ég efast hreinlega um að hann hafi lesið. Þar er spurt um hver meðaflinn hafi verið samkvæmt mælingum Fiskistofu. En hann er sáralítill miðað við þann mikla kolmunnaafla sem borinn hefur verið á land á þessum árum. Hann er sáralítill, menn sjá það í hendi sér. Það segja gögnin sem við höfum.

Varðandi laxinn þá hefur aldrei verið jafngóð laxveiði, eða nánast ekki síðustu 30 árin. Hún hefur aukist undanfarin ár. Búið er að beita umfangsmiklum svæðalokunum og það kemur líka fram í nýjasta svari hæstv. sjávarútvegsráðherra. Ég spurði einmitt um hve oft hefði komið til svæðalokana vegna meðafla uppsjávarveiðiskipa og þá hvar og hvenær.

Þetta er til í þskj. 426 og ég hvet hæstv. ráðherra til að fara og ná í það og lesa það gaumgæfilega. Það er búið að loka mjög stórum svæðum. Það er bannað að veiða með síldarflotvörpu innan við 12 mílur nema á örfáum svæðum og þar gilda strangar reglur. Það er búið að loka stórum svæðum fyrir kolmunnaveiðum, til að mynda á Þórsbanka, eins og ég fór yfir í ræðu minni áðan. Þetta er allt til í opinberum göngum. En þrátt fyrir þær augljósu staðreyndir setjast menn hér niður og herða enn skrúfuna, þessa vitlausu skrúfu á fiskveiðistjórnarkerfinu okkar, og var ekki nóg komið?