131. löggjafarþing — 112. fundur,  18. apr. 2005.

Rannsókn kjörbréfs.

[15:03]

Forseti (Halldór Blöndal):

Kjörbréfanefnd mælir einróma með samþykkt kjörbréfsins og telst það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.

Una María Óskarsdóttir hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Una María Óskarsdóttir, 5. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]