Frestur til að skila inn kauptilboðum í Símann.
Steingrímur J. Sigfússon (Vg):
Herra forseti. Ég beini máli mínu til hæstv. forsætisráðherra sem yfirmanns einkavæðingarnefndar vegna þeirrar hreyfingar sem farin er af stað meðal almennings um að bjarga Símanum út úr einkavæðingarferli ríkisstjórnarinnar með því að þjóðin bindist samtökum um að kaupa fyrirtækið af sjálfri sér. Það er auðvitað tímanna tákn og sýnir hversu gersamlega hefur gengið fram af almenningi í landinu sú stefna sem ríkisstjórnin hefur fylgt í þessum efnum. Auðvitað ætti hæstv. ríkisstjórn að sjá að sér, loksins, og hætta við þessa einkavæðingu enda bersýnilegt að hún er í andstöðu við vilja meiri hluta þjóðarinnar eins og rækilega og ítrekað og endurtekið hefur komið fram í skoðanakönnunum.
En það er algert lágmark í ljósi þeirra aðstæðna sem upp eru komnar að almenningi verði gert það mögulegt og greitt verði fyrir því af hálfu stjórnvalda að almenningur geti þá orðið þátttakandi í þessum kaupum ef af þeim á að verða. Til þess þurfa menn væntanlega meiri tíma til að safna liði og skipuleggja sig og hafa reyndar þegar komið ósk þar um á framfæri við stjórnvöld.
Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hann sé ekki tilbúinn til að gefa um það yfirlýsingu hér og nú að hann eða ríkisstjórnin muni beita sér fyrir því að slíkur rýmri tími verði gefinn til að undirbúa þátttöku almennings í þessum viðskiptum, ef ekki beinlínis að sjálft söluferlið verði endurskoðað og því breytt þannig að það auðveldi aðkomu almennings að þessu máli og geri þjóðinni þannig mögulegt að bjarga sínu eigin fyrirtæki úr klónum á einkavæðingarferli ríkisstjórnarinnar.