Frestur til að skila inn kauptilboðum í Símann.
forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):
Herra forseti. Eins og fram hefur komið var ákveðið að tillögu einkavæðingarnefndar og ráðgjafarfyrirtækisins Morgans Stanleys að selja fyrirtækið Símann í einu lagi. Það var af þeirri ástæðu að ráðgjafarfyrirtækið taldi að verð fyrir Símann yrði um það bil 20–25% hærra ef þessi aðferð yrði notuð. Það þjónar að sjálfsögðu jafnframt hagsmunum almennings að fá sem hæst verð fyrir fyrirtækið.
Að því er varðar það tiltekna mál sem hv. þingmaður gat hér um átti ég fund með forsvarsmönnum þessa félags fyrir helgi. Ég beindi því til einkavæðingarnefndar að taka það til umfjöllunar. Það mun verða gert seinna í dag. Ég tel að sá tími sem viðkomandi aðilar hafa til ráðstöfunar sé allmiklu meiri en gert var ráð fyrir þannig að ég vænti þess að þeir, eins og aðrir, hafi nægilegan tíma til að koma inn tilboði í fyrirtækið. Það liggur fyrir að það þarf ekki fyrir þann tiltekna frest sem var þar tilgreindur að vera búið að mynda þá hópa sem þarf þegar menn þurfa að senda inn bindandi tilboð. Ég vænti þess því að þessir aðilar hafi nægilegan tíma og ég fagna áhuga þeirra eins og allra annarra. Mjög mikill fjöldi aðila hefur sýnt þessu fyrirtæki áhuga sem bendir til þess að mjög gott verð muni fást fyrir fyrirtækið fyrir hönd almennings í landinu.