131. löggjafarþing — 112. fundur,  18. apr. 2005.

Frestur til að skila inn kauptilboðum í Símann.

[15:10]

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Það er auðvitað góðra gjalda vert að Ríkisendurskoðun sinni hlutverki sínu en það kemur ekki í staðinn fyrir það sem hér er um spurt, að greitt verði fyrir því að almenningur fái tíma til að skipuleggja sig og gera tilboð í þessi viðskipti ef menn ætla að halda áfram með þessa sölu.

Ríkisendurskoðun hefur fyrr gert úttekt á framkvæmd einkavæðingar hjá hæstv. ríkisstjórn og gefið henni heldur lága einkunn en því miður virðist ríkisstjórnin lítið hafa af því lært. Ætli það séu ekki einar tvær skýrslur sem liggja fyrir, annars vegar úttektin á SR-mjöli á sínum tíma og hins vegar úttekt á einkavæðingunni einhvern tíma rétt fyrir 2000 sem báðar voru með mikla gagnrýni á það hvernig menn hefðu sífellt breytt um aðferðir og hringlað með þessi mál. Það er auðvitað orðið deginum ljósara að það sem þarf er ítarleg opinber rannsókn á vinnubrögðunum við þessar einkavæðingar allar, og þá ekki síst einkavæðingu Búnaðarbankans.