Sameining heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu.
heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hlý orð í minn garð en ég endurtek að auðvitað hefði ég getað gefið út reglugerð um þetta mál. Sveitarfélögin taka ekki lengur beinan þátt í heilsugæslunni. Ég hef ekki viljað vinna þannig og ég hef viljað skiptast á skoðunum. Við höfum viljað fara yfir þetta mál þannig að það liggi alveg ljóst fyrir. Við erum í þeirri vinnu þessa dagana. Ég vona að það verði skilningur á þessu, en ég get ekkert sagt um það á þessu stigi hvernig málinu lyktar. Ég vona að við getum komist að sameiginlegri niðurstöðu um þetta mál þegar allar skýringar eru komnar fram í því.