131. löggjafarþing — 112. fundur,  18. apr. 2005.

Ráðstöfun söluandvirðis Símans.

[15:20]

Birkir Jón Jónsson (F):

Hæstv. forseti. Umræða um sölu Símans hefur verið ansi fyrirferðarmikil í þjóðfélaginu að undanförnu eins og við hv. þingmenn heyrðum m.a. hér áðan. Við þessa fyrirhuguðu sölu munu losna milljarðatugir, fjármunir sem hafa verið bundnir í þessu fyrirtæki í áratugi. Þessir fjármunir verða nýttir, eins og fram kom hjá hæstv. forsætisráðherra áðan, í þágu þjóðarinnar. Að teknu tilliti til þessa ber stjórnvöldum að hámarka söluandvirði Símans og því hefur hæstv. ríkisstjórn farið eftir ráðleggingum Morgans Stanleys um að selja fyrirtækið í heilu lagi því það þjónar hagsmunum almennings hvað best.

Hæstv. forseti. Eins og ég sagði áðan verður andvirðinu varið m.a. til þess að bæta hagsmuni almennings, bæta stöðu ríkissjóðs sem mun svo verða í framtíðinni betur í stakk búinn til að standa undir velferðarþjóðfélagi okkar. Það er óumdeilt að minnkandi skuldir ríkissjóðs í tíð núverandi ríkisstjórnar eru fjármunir framtíðarinnar. Við verjum í dag miklu minni fjármunum í vaxtagjöld af skuldum ríkissjóðs en fyrir tíu árum, og þá fjármuni er hægt að nota til brýnni verkefna um ókomna tíð. (Gripið fram í.)

Hæstv. forseti. Ég vil þó gefa mér í ljósi þess að Síminn muni skila þjóðarbúinu milljarðatugum, ef af sölu hans verður, að einhverjum fjármunum verði varið til einhverra brýnna verkefna í þágu almennings. Í ljósi mikillar umræðu um samgöngumál sem nú á sér stað í þjóðfélaginu vil ég spyrja hæstv. forætisráðherra hvort hann hyggist beita sér fyrir því að verja hluta af söluandvirði Símans t.d. í uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja hér á landi. Ef svo er, þá hverra?