Könnun á viðhorfi til álvers á Suðurlandi.
viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):
Hæstv. forseti. Já, það fór fram könnun á Norðurlandi í sambandi við hugsanlega uppbyggingu stóriðju, og þá er það álver sem verið er að ræða um. Ég lét það koma hér fram að þetta væri ekki mjög kostnaðarsamt, það er rétt haft eftir hjá hv. þingmanni. Könnunin skipti máli fyrir umræðuna. Það er ekki þar með sagt að niðurstaða könnunarinnar skipti öllu máli en hún er þó a.m.k. innlegg í þá umræðu sem fer fram á Norðurlandi í sambandi við uppbyggingu áliðnaðar.
Fyrirtæki hafa gefið sig fram sem eru áhugasöm um það að fjárfesta í álveri á Norðurlandi og þess vegna erum við að fjalla um Norðurland. Ef slíkt hið sama kæmi upp um önnur landsvæði er ekkert því til fyrirstöðu að fara í sambærilega könnun á þeim svæðum. Þar sem þetta er raunverulegur kostur í dag, þó að þetta sé ekki hlutur sem er að gerast alveg á næstu árum, varð þetta niðurstaðan í sambandi við Norðurland. Ég trúi ekki að hv. þingmaður sé að gagnrýna það að fólkið í landinu sé spurt um álit í þessum efnum.