131. löggjafarþing — 112. fundur,  18. apr. 2005.

Breyting á starfsáætlun Alþingis.

[15:43]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil láta þess getið að gert er ráð fyrir því að starfsáætlun þingsins verði breytt á þann veg að nefndafundir verði á föstudag í þessari viku og mánudag í næstu viku en ég mun hitta formenn þingflokka á miðvikudag til að ræða frekar um fundatilhögun í næstu viku.