Loftferðir.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 60/1998, um loftferðir. Með frumvarpi þessu til laga um breytingu á loftferðalögum, nr. 60/1998, er lagt til að innleiddar verði í íslenskan rétt ýmsar Evrópureglur á sviði flugverndar og flugöryggis. Hér höldum við áfram á þeirri braut sem við höfum sett okkur, þ.e. að setja öryggi flugsamgangna ávallt í fyrsta sæti.
Frumvarp þetta var samið af starfshópi á vegum samgönguráðuneytisins með fulltrúum ráðuneytisins og Flugmálastjórnar Íslands. Ráðuneytið leitaði umsagnar fjölmargra aðila, og var að nokkru leyti tekið tillit til þeirra. Þá var leitað umsagnar ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur sem telur að breytingarnar séu í fullu samræmi við viðeigandi kröfur og lög og reglur um opinbert eftirlit.
Alþingi hefur þegar samþykkt aðild að Flugöryggisstofnun Evrópu. Með þátttökunni í stofnuninni er annars vegar stigið mikilvægt skref í átt að auknu flugöryggi hér á landi og hins vegar greiðir hún fyrir öllum samskiptum við flugmálayfirvöld í Evrópu sem styrkir hina miklu útrás íslenskra flugrekenda. Í frumvarpinu verða ítarlegri reglur varðandi aðild Íslands og innleiðingu á reglugerðum ESB um stofnunina.
Annar mikilvægur þáttur sem vikið er að í frumvarpinu og lýtur að öryggi er ákvæði um tilkynningarskyldu flugatvika og meðferð þeirra. Gert er ráð fyrir því að söfnun og miðlun upplýsinga milli landa á þessu sviði eigi eftir að auðvelda greiningu á öryggisvandamálum áður en þau leiða til slysa, og breytingar á refsiákvæðum laganna munu gera þann þátt virkari. Með þessu verði stigið mikilvægt skref í forvörnum og Íslendingar skipa sér í fremstu röð þjóða hvað þetta varðar.
Annar grunnþáttur sem tengist öryggi flugs og tekið er á í frumvarpinu lýtur að flugverndarmálum en stöðugt er unnið að innleiðingu á alþjóðlegum reglum á því sviði hér á landi.
Hæstv. forseti. Ég mun nú gera ítarlegri grein fyrir einstökum breytingum sem fyrirhugaðar eru með frumvarpinu.
1. Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu taka mið af breytingum sem orðið hafa á flugmálum innan Evrópu með stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, EASA. Meginhlutverk stofnunarinnar er að vinna að auknu flugöryggi í Evrópu og tryggja samræmdar öryggiskröfur í flugi á svæðinu. Stofnunin yfirtekur ýmis verkefni, bæði lagalegs og tæknilegs eðlis, sem hafa verið í höndum Flugöryggissamtaka flugmálastjórna Evrópu (JAA). Stofnuninni hefur einnig verið falið að sjá um hluta af þeim verkefnum flugmálastjórna á EES sem lúta að útgáfu og viðurkenningum á tegundarskírteinum flugvéla og íhluta þeirra. Það er ljóst að flugöryggisstofnunin mun hafa gríðarleg áhrif á þróun flugöryggismála í Evrópu.
2. Frumvarpið gerir ráð fyrir breyttum reglum um tilkynningarskyldu í almenningsflugi og innleiðingu á tilskipun ESB á því sviði. Auk þess er hér lagt til að refsiákvæðum laganna verði breytt þannig að þeim sem tilkynna um flugatvik frá eðlilegri starfsemi verði ekki refsað þó að reglur hafi verið brotnar að öðrum skilyrðum uppfylltum. Unnið er að samræmingu á reglum á þessu sviði í Evrópu og verið að taka upp samræmt kerfi skráningar auk upplýsingaskipta um atvik og orsakavalda óhappa. Nauðsynlegt er að miðla upplýsingum milli ríkja um þessi mál þar sem orsök slysa í einu ríki getur verið óþekkt í öðru.
Flugið hefur algera sérstöðu gagnvart öðrum samgönguþáttum hvað varðar rannsóknir slysa og fyrirbyggjandi aðgerðir og þar hefur náðst verulegur árangur í lækkun slysatíðni. Meginmarkmið nýju tilskipunarinnar og frumvarps þessa sem og rannsókna á flugslysum og flugatvikum er að auka flugöryggið. Í þessu skyni er mikilvægt að tilkynna um öll frávik frá eðlilegri flugstarfsemi. Alþjóðaflugmálastjórnin hefur lagt á þetta áherslu. Það er einnig viðurkennd staðreynd að verulega hefur skort á að öll flugatvik hafi verið tilkynnt. Ekki er ástæða til að ætla að því sé öðruvísi farið hér á landi en erlendis. Í frumvarpinu er því lagt til að þau atvik sem eru tilkynnt í samræmi við þessi ákvæði leysi tilkynnanda undan refsiábyrgð að uppfylltum öðrum skilyrðum. Þetta er mjög mikilvægur þáttur í því að tryggja að upplýsingar um brotalamir á þessu sviði komi fram. Með þessu erum við að feta í fótspor Dana en reynsla þeirra af sams konar breytingu hefur verið góð. Ég vil geta þess hér að við samningu þessara ákvæða var haft sérstakt samráð við flugrekendur og hagsmunafélag flugmanna, flugumferðarstjóra og flugvirkja sem varðar þetta mál miklu.
Jafnframt er gert ráð fyrir að allar tilkynningar séu vistaðar í sérstökum gagnagrunni og að ríki innan EES geti skipst á upplýsingum um atvik og orsakir. Þannig er lagður grunnur að miðlun upplýsinga sem hugsanlega geta komið í veg fyrir frekari slys eða óhöpp.
Með þeirri breytingu sem hér er lögð til er fyrst og fremst verið að leggja áherslu á forvarnir en með tilkynningum, úrvinnslu þeirra og miðlun upplýsinga milli flugöryggisstofnana innan Evrópu er lagður öflugur grunnur að þessum þætti auk þess sem lögð er áhersla á vernd upplýsinga sem safnað er með þessum hætti.
3. Með frumvarpi þessu verður stigið skref í innleiðingu á reglugerðum ESB um samevrópska loftrýmið sem gerir m.a. kröfu um að flugleiðsöguþjónusta skuli leyfisskyld í samræmi við alþjóðlegar reglur og staðla. Því fylgir einnig krafa um aðskilnað þjónustu og eftirlits. Með væntanlegri aðild Íslands að samevrópska loftrýminu verða m.a. innleiddar á Evrópusvæðinu sameiginlegar reglur um flugleiðsöguþjónustu og skírteini flugumferðarstjóra. Með þessu er tekist á við ýmsar lagahindrandir sem hafa haft áhrif á þróun flugumferðar og möguleika flugleiðsöguþjónustunnar til að takast á við framtíðarkröfur. Endurskipulagning loftrýmis er gerð möguleg út frá flæði flugumferðar frekar en landamærum ríkja jafnframt því sem þeim er ætlað að auka öryggi og bæta afköst og hagkvæmni flugstjórnarkerfisins í Evrópu. Þá er einnig leitast við að koma upp einsleitu kerfi varðandi tæknibúnað og verklag sem mun auka öryggi og hagkvæmni á þessu sviði.
4. Alþjóðaflugmálastjórnin og Evrópusambandið hafa tekið flugverndarmál upp á arma sína og hafa lagt mikla áherslu á þessi mál eftir atburðina 11. september 2001. Gefnar hafa verið út sjö EB-reglugerðir vegna málaflokksins og unnið er að innleiðingu á þessum reglugerðum hér á landi. Vegna þessa er m.a. nauðsynlegt að taka upp ítarlegri ákvæði og heimildir inn í þessa grein loftferðalaganna. Með breytingunni er aðallega verið að skjóta fleiri lagastoðum undir Evrópureglugerðir um flugvernd sem Ísland hefur skuldbundið sig til að taka upp. Þá er nauðsynlegt að hafa skýrar lagaheimildir til ýmiss konar aðgerða er tengjast flugvernd sem bæði þrengja að almennum réttindum borgaranna og leggja kvaðir á fyrirtæki.
5. Í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september 2001 hefur allt eftirlit með flugi verið stóreflt. Stjórnvöld um allan heim hafa brugðist við þeirri vá sem af hryðjuverkum stafar. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa ítrekað gefið út viðvaranir vegna ógnananna sem þau hafa talið beinast að sér. Jafnframt hafa komið fram kröfur frá þeim um að vopnaðir verðir séu um borð í flugvélum sem fljúga til Bandaríkjanna. Ljóst er að sú krafa er mjög umdeild og að mörg ríkin, flugrekendur og hagsmunafélög flugmanna eru mjög andsnúin henni. Það breytir ekki þeirri staðreynd að verði flugfélag ekki við kröfu um vopnaða verði um borð fá þau ekki heimild til flugs til Bandaríkjanna. Ítrekað hefur t.d. verið fellt niður flug frá Bretlandi vegna kröfu þess efnis.
Ísland hefur öflugri flugsamgöngur til Bandaríkjanna en velflest ríki Evrópu vegna sterkrar stöðu Icelandairs á þessum markaði. Ef krafa um vopnaða verði kemur fram og stendur í einhvern tíma er ljóst að það mundi hafa alvarlegar afleiðingar fyrir samgöngur héðan til Bandaríkjanna. Nauðsynlegt er að hægt sé að bregðast við því ef ekki eru önnur úrræði tæk til að halda uppi nauðsynlegum samgöngum. Ef til þess kemur þarf að liggja fyrir skýr lagaheimild. Breyting sú sem hér er lögð til miðar að því að leggja grunn að slíkri heimild. Nauðsynlegt er að hafa í huga að ákvæðið er hugsað sem þrautalending sem er háð mjög ströngum skilyrðum ef aðrar leiðir reynast ekki færar. Þannig eru eftirfarandi fyrirvarar um beitingu ákvæðisins:
Samgönguráðherra leggur sjálfstætt mat á beitingu ákvæðisins. Til þess þurfa að vera brýnar ástæður.
Beiðni verður að hafa borist frá íslenskum flugrekanda vegna þessa. Sú krafa þarf að vera til komin vegna kröfu erlends ríkis.
Dómsmálaráðherra þarf að mæla með því.
Utanríkisráðherra þarf að mæla með því. Það er að sjálfsögðu von mín að ekki þurfi til þess að koma að ákvæðinu verði beitt.
6. Að lokum eru lagðar til nokkrar breytingar á gildandi lögum sem miða að bættri og einfaldari stjórnsýslu í samræmi við almenna stefnu ráðuneytisins á því sviði.
Hæstv. forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni umræðu vísað til 2. umr. og hv. samgöngunefndar.