131. löggjafarþing — 112. fundur,  18. apr. 2005.

Loftferðir.

699. mál
[16:42]

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég náði því ekki alveg hvaða hluti þessa frumvarps snýr eingöngu að millilandaflugi og þeim flugvöllum sem eru millilandaflugvellir eða uppfylla þau skilyrði annars vegar og hins vegar innanlandsfluginu þar sem tengingin er á Keflavíkurflugvöll eða Reykjavíkurflugvöll og síðan á aðra flugvelli sem ekki eru millilandaflugvellir. Ná þessi lög eingöngu til millilandaflugsins og þeirra flugvalla sem þjóna sem viðurkenndir millilandaflugvellir? Er innanlandsflugið að öðru leyti óháð þeim reglum og kröfum sem hér er verið að setja?

Ég spurði líka t.d. um kröfur um þjónustu til þeirra sem eiga að verða slíkir flugvellir. Þetta eru fyrst og fremst öryggiskröfur en það er ekki verið að ræða neinar þjónustukröfur, eins og t.d. um eldsneytisafgreiðslu. Þetta er sjálfsagt komið í lag á Egilsstöðum en það var mál á sínum tíma að eldsneytisdælan dældi svo hægt að engar stórar flugvélar gátu lent þar. Á sínum tíma var margra klukkutíma bið að fylla vélarnar. Er eldsneytisafgreiðsla t.d. ekki hluti af þeirri viðbragðs- og öryggisþjónustu sem þessir flugvellir þurfa að hafa? Er hún í lagi á þeim flugvöllum sem eru millilandaflugvellir eða hafa þá stöðu hér?