Loftferðir.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það verður vitaskuld að gera tilteknar kröfur til þjónustu á flugvöllum. Eitt af þessum grundvallaratriðum er að gera afgreitt eldsneyti þannig að ég á ekki von á öðru en að það geti verið í eðlilegu horfi þó að kannski hafi á einhverjum tíma verið gerðar athugasemdir við það.
Hvað varðar annars vegar millilandaflugvellina og hins vegar innanlandsflugið varða þessar reglur allar að því leyti innanlandsflugið að hér er verið, m.a. vegna tilkynningarskyldu um flugatvik og fleira, að auka öryggið með upplýsingagjöf og með því að gera tilkynningar um flugatvik auðveldari. Sá lærdómur sem af því er dreginn kemur að notum í innanlandsfluginu. Það er þó ekki verið að herða sérstaklega kröfur um rekstur í innanlandsflugi með þessu, heldur er almennt verið að fjalla um aukna flugvernd og aukið flugöryggi. Hvað varðar það að aðskilja í meira mæli annars vegar eftirlitið og hins vegar rekstur varðar það að sjálfsögðu flugið allt.