131. löggjafarþing — 112. fundur,  18. apr. 2005.

Loftferðir.

699. mál
[16:45]

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Mér finnst þetta aðeins loðið því að stór hluti af öryggiseftirlitinu, bæði í innanlandsflugi og millilandaflugi, er flugleiðsöguþjónustan. Nú held ég að í þessu frumvarpi sé gert ráð fyrir því að hún sé sérleyfisskyld. Í 7. gr. stendur, með leyfi forseta:

„Nú vill aðili hefja starfrækslu flugleiðsöguþjónustu og skal þá umráðamaður og/eða eigandi sækja um starfsleyfi til Flugmálastjórnar Íslands minnst þremur mánuðum fyrir upphaf þjónustunnar.“

Getum við átt von á því að hér séu margir aðilar, einkaaðilar, sem er boðið út og geta farið að reka flugþjónustu? Þetta orðalag bendir til að þetta eigi að verða urtagarður af flugleiðsöguþjónustufyrirtækjum. Ég held að það sé mjög óheppilegt, og tel reyndar að Flugmálastjórn gæti vel sinnt báðum þessum verkefnum ef settar væru um það skýrar reglur þannig að ekki ætti að þurfa að búta þetta niður.

Herra forseti. Mér finnst loðið að hve miklu leyti þetta tekur tillit til innanlandsflugs og millilandaflugs. Að sjálfsögðu nýtist gagnaöflun og þekking sem kemur inn með eftirliti með millilandaflugi líka innanlandsfluginu en ég held að við þurfum að vera á varðbergi gagnvart því að samþykkja ekki yfir okkur að óathuguðu máli auknar kostnaðaraðgerðir í innanlandsfluginu og reyndar líka í millilandaflugi því að þar er líka hörð samkeppni en þar fylgjum við þó alþjóðalögum. Ef við getum innan lands beitt innlendum lögum tel ég það verulegan kost.