131. löggjafarþing — 112. fundur,  18. apr. 2005.

Skipan ferðamála.

735. mál
[17:09]

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg bersýnilegt að hv. þingmaður hefur ekki lesið frumvarpið (SigurjÞ: Jú, jú.) og hefur ekkert sett sig inn í hvað hér er á ferðinni. Ferðamálastofa er ekki eingöngu eftirlitsstofnun, það er alger misskilningur. (Gripið fram í.) Það er fullkomin aukabúgrein, þetta viðfangsefni að gefa út ferðaskrifstofuleyfi og leyfi til fyrirtækja sem sinna einhverri þjónustu, hestamennsku og þvílíkri starfsemi. Það er afar smár partur af mikilvægum verkefnum Ferðamálastofu sem fyrst og fremst snýst um það að sjá um landkynningu, upplýsingagjöf og umhverfismál, m.a. eins og verið er að vinna að á Akureyri. Hv. þingmaður hefur eitthvað misskilið þetta sem hann er hér að fjalla um þegar hann reynir að klína þeim stimpli á Sjálfstæðisflokkinn að hann sé að setja upp enn eina eftirlitsstofnun. Það er verið að breyta nafni á skrifstofu Ferðamálaráðs yfir í að verða Ferðamálastofa sem sé sjálfstæð og sinni alveg skilgreindum verkefnum. Hún getur líka falið það öðrum aðilum þannig að það er ekkert útilokað að aðilar í öðrum stofnunum, ef við notum það orð, fái einhver tiltekin skýrt skilgreind verkefni á þeim sviðum sem Ferðamálastofu er falið.

Ég held að hv. þingmaður ætti að kynna sér málið betur og koma síðan í umræðuna.