Skipan ferðamála.
Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):
Virðulegi forseti. Á sama tíma og umfang ferðaþjónustunnar í íslensku atvinnulífi og þjóðlífi hefur aukist alveg gríðarlega á undanförnum árum — til að mynda jukust gjaldeyristekjur af ferðamönnum um 5,4% milli ára 2003 og 2004 og slíkar tölur mætti margar aðrar tína til um aukið umfang ferðaþjónustunnar í íslensku atvinnulífi — stendur greinin að mörgu leyti á veikum grunni. Gjaldþrot og fjárnám innan greinarinnar eru langt umfram vægi ferðaþjónustunnar í þjóðarbúskapnum þannig að um leið og það er mjög mikill uppgangur í greininni og auknar tekjur af henni stendur hún að mörgu leyti svolítið veikt og víða þarf að taka á.
Því tengdu spyr ég hæstv. samgönguráðherra út í ályktun sem kom frá aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar fyrir nokkrum dögum. Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar lýsti miklum vonbrigðum með það að dregið skyldi úr opinberum framlögum til markaðsmála í ferðaþjónustunni á sama tíma og greinin berst við að standa af sér mikla tekjurýrnun vegna hins sterka gengis krónunnar. Það segir, með leyfi forseta:
„Fáar atvinnugreinar á Íslandi eru jafnberskjaldaðar fyrir gengissveiflum og ferðaþjónustan og því brýn þörf á að hún búi við mikinn skilning opinberra aðila. Skorað er á stjórnvöld að efla á ný markaðssókn á mörkuðum og að haldið verði áfram öflugu samstarfi hins opinbera og atvinnugreinarinnar.“
Þetta er ansi sterkt til orða tekið og augljóst að Samtök ferðaþjónustunnar eru mjög óánægð með framgöngu stjórnvalda hvað varðar þátttöku hins opinbera í framlögum til markaðsmála. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvort til standi að snúa af þessari braut og verða að einhverju leyti við áskorun ferðaþjónustunnar.