Skipan ferðamála.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Aðkoma stjórnvalda að hagsbótaaðgerðum gagnvart ferðaþjónustunni er margs konar. Í fyrsta lagi er það tengt verulegri landkynningu og markaðsaðgerðum en einnig er það tengt því að bæta aðgengi að fjölförnum ferðamannastöðum, og ég tala nú ekki um uppbyggingu samgöngukerfisins og stuðning við almenningssamgöngur, bæði í flugi, siglingum og starfsemi rútufyrirtækjanna. Ríkisvaldið kemur með ýmsum hætti að stuðningsaðgerðum gagnvart ferðaþjónustunni sem á ekki við um aðrar atvinnugreinar.
Ástæðan fyrir því að við höfum talið eðlilegt að gera þetta er að þetta er ung atvinnugrein sem er að feta sig áfram og við teljum nauðsynlegt að standa vel við bakið á henni.
Eftir 11. september 2001 fórum við af stað með mjög öflugar markaðsaðgerðir, bæði í Evrópu og Norður-Ameríku, og veittum til þess aukna fjármuni. Þetta hefur borið mikinn árangur, geysilega mikinn árangur, og hefur allt saman verið gert í góðu samstarfi við greinina.
Nú ákváðum við að draga örlítið úr framlögum til markaðsaðgerða og landkynningar á þessu ári en svo bregður við að það er ekkert lát á vextinum. Ferðamönnum til landsins heldur áfram að fjölga þannig að það virðist vera sem við höfum náð geysilega góðum árangri og það sé ekki eingöngu hægt að mæla það á þann mælikvarða króna sem settar eru inn af hálfu ríkisins, heldur hafa aðgerðir og vinnubrögð Ferðamálaráðs og stjórnvalda verið að ná árangri. Það er því alls ekki rétt að líta svo á að minni fjármunir muni skaða greinina. Ég tel að það sé fjarri lagi en (Forseti hringir.) auðvitað vill greinin fá meiri fjármuni. Að því mun ég að sjálfsögðu vinna.