131. löggjafarþing — 112. fundur,  18. apr. 2005.

Skipan ferðamála.

735. mál
[17:43]

Guðmundur Hallvarðsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Oft heyrist það þá rætt er í þessum sal um ferðamál — þá er venjulega klifað á því — hvað áfengisgjaldið hér sé hátt og við illa staddir, Íslendingar, í samanburði við erlenda aðila varðandi alkóhól í hvaða mynd sem það er, hvort sem er í sterkum drykk eða bjór. En sé grannt skoðað er annað upp á teningnum. Ég get bent hv. þingmanni á að ef hann fer t.d. til Kaupmannahafnar er hann að greiða fyrir bjórglas mjög svipað verð og jafnvel á stundum hærra en þarf að borga í Reykjavík.

Í annan stað, þegar menn eru að tala um sterka drykki eru þeir að bera saman tvo ólíka hluti. Annars vegar er mælieiningin á Íslandi 3 sentílítrar en þegar menn panta áfengi erlendis er sú mælieining venjulega 2 sentílítrar. Af því leiðir að magnið er meira á Íslandi en erlendis og þess vegna eru sterkir drykkir dýrari hér en þarlendis.

Telur þingmaðurinn að það mundi lækka verulega áfengi, bjór og sterka drykki, í veitingahúsum ef ríkið mundi fella niður áfengisgjaldið sem núna er líklega 60–70 kr., ef það yrði t.d. lækkað um 30 kr.? Mundi þess gæta í verðlagningu veitingahúsanna á sterku víni og bjór? Ég tel að svo sé ekki, enda er verðið sambærilegt þegar grannt er skoðað miðað við það sem er að gerast annars staðar á Norðurlöndunum.