131. löggjafarþing — 112. fundur,  18. apr. 2005.

Skipan ferðamála.

735. mál
[18:14]

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar og verð að ríkisstofnun eigi ekki að stofna að óþörfu. Nóg er orðið af eftirlitsstofnunum í sjálfu sér í samfélaginu þar sem hver eftirlitsstofnunin á eftir annarri hefur verið sett á fót á undanförnum árum og allar krefjast þær gjalda sem leggjast síðan stöðugt á einstaklinga og þau mörgu fyrirtæki sem í greininni eru. Ég hugsa að aðilum í ferðaþjónustu þyki orðið ærið nóg um eftirlitsgjöld, leyfisgjöld o.s.frv. án þess að ég ætli að leggja mat á það hver þeirra séu ónauðsynleg og hver ekki. Fiskistofa hefur oft verið nefnd sem dæmi þar sem gert var ráð fyrir að í hæsta lagi fjórir menn störfuðu þegar setja átti hana á stofn í upphafi. Engum datt í hug þá, a.m.k. í orði, að hún yrði neitt stærri og nú er hún orðin ein af stærri stjórnsýslustofnunum og eftirlitsstofnunum í samfélaginu, þannig að sporin hræða hvað það varðar. Þá kemur líka til staðsetningin því þá fara hinir ýmsu aðilar að horfa á verkefnin sem tengjast þessu og útsvör og annað.

Ég tel að fara eigi mjög varlega hér og efna ekki til þessarar stofnunar að óþörfu og að huga þurfi þá vandlega að því hver skuli vera stjórnsýsluleg verkefni hennar. Talað er um í 4. gr. að fela megi þau öðrum. Mér finnst að þar ætti að standa að stjórnsýsluleg verkefni séu falin öðrum opinberum stjórnsýslustofnunum en opna ekki á möguleika á einkavæðingu í opinberu eftirliti eins og þessi setning gæti vitnað til.

Frú forseti. Við skoðum málið í hv. samgöngunefnd á þeim hraða sem eðlilegt er að slíkt mál sé unnið.