Afgreiðsla mála fyrir þinghlé.
Margrét Frímannsdóttir (Sf):
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir þær athugasemdir sem fram hafa komið um það að mál eiga að vera komin hér í dreifingu 1. apríl. Við þurfum að fara að skipuleggja mjög vel þessa síðustu daga, þá fáu starfsdaga þingsins sem eftir eru.
Hins vegar er þeim tveimur málum sem hér er verið að biðja um afbrigði fyrir í dag þannig háttað, og sérstaklega þá frumvarpi frá hæstv. landbúnaðarráðherra um Lánasjóð landbúnaðarins, að ráðherra hafði samband við formenn þingflokka og óskaði eftir því að afbrigði yrðu veitt. Samfylkingin verður við því. Það gerum við á þeim forsendum að við teljum mjög nauðsynlegt að þetta mál komist í umræðu í nefndinni en ekki síður að það fái þá umfjöllun úti í þjóðfélaginu og umsagnir sem nauðsynlegt er að berist áður en Alþingi tekur afstöðu til málsins.
Hið sama gildir í raun um stefnuna í fjarskiptamálum. Við munum styðja afbrigði í þessum tilvikum. Eftir samræður við hæstv. ráðherra og formenn þingflokka mun þingflokkur Samfylkingarinnar styðja þessi afbrigði en, hæstv. forseti, ég óska eindregið eftir því fyrir hönd þingflokks Samfylkingarinnar að fyrir þingflokksfundi á mánudag, þegar tveir nefndadagar hafa verið, liggi fyrir með hvaða hætti skipulagið verður og hvaða mál á að afgreiða fyrir þinglok.