131. löggjafarþing — 113. fundur,  19. apr. 2005.

Breyting á XVII. viðauka við EES-samninginn.

438. mál
[14:34]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar á þskj. 1130. Þetta er mál 438, tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 110/2004, um breytingu á XVII. viðauka við EES-samninginn, um hugverkaréttindi.

Hæstv. menntamálaráðherra hefur einmitt lagt fram frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum til þess m.a. að innleiða efni þessarar tilskipunar og það mál var á dagskrá þingsins hér áðan og nokkrar umræður urðu um það. Það frumvarp fer að sjálfsögðu til menntamálanefndar.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 110/2004 frá 9. júlí 2004, um breytingu á XVII. viðauka við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/29/EB frá 22. maí 2001 um samræmingu tiltekinna þátta höfundarréttar og skyldra réttinda í upplýsingasamfélaginu.

Nefndin fékk til fundar við sig þau Ernu S. Hallgrímsdóttur frá utanríkisráðuneyti, Jón Vilberg Guðjónsson frá menntamálaráðuneyti, Ásmund Jónsson frá Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda, Sverri Jakobsson og Jón Yngva Jóhannsson frá Hagþenki, Ragnheiði Tryggvadóttur frá Rithöfundasambandi Íslands, Knút Bruun frá Myndstefi og Halldór Þ. Birgisson frá Félagi íslenskra bókaútgefenda og Fjölís.

Með innleiðingu tilskipunarinnar í íslensk lög verður m.a. kveðið á um að höfundum og rétthöfum svokallaðra skyldra réttinda, þ.e. listflytjendum, framleiðendum hljóðrita, kvikmyndaframleiðendum og útvarpsfyrirtækjum, skuli tryggður einkaréttur til hvers konar eftirgerðar verka sinna og nánar tiltekins efnis. Einkaréttur höfunda mun þannig einnig ná til afrita í rafrænu formi. Þá mun höfundum einnig tryggður einkaréttur til hvers konar miðlunar og dreifingar með sölu eða á annan hátt til almennings. Rétthöfum skyldra réttinda, svo sem listflytjendum, framleiðendum og útvarpsfyrirtækjum, skal tryggður einkaréttur til að gera nánar tiltekið efni sitt aðgengilegt almenningi. Þá er gert ráð fyrir að styrkja almennt lögvernd þeirra réttinda sem höfundar og rétthafar skyldra réttinda njóta og taka m.a. á brotum sem felast í að farið sé fram hjá afritunarvörnum.

Hæstv. forseti. Utanríkismálanefnd leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálit þetta skrifa hv. þingmenn Sólveig Pétursdóttir, Siv Friðleifsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Sigurður Kári Kristjánsson, Jónína Bjartmarz og Þórunn Sveinbjarnardóttir.