Fjarskipti.
Bryndís Hlöðversdóttir (Sf):
Frú forseti. Eins og hæstv. samgönguráðherra rakti í framsögu sinni er komið nokkuð víða við í þessu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjarskipti. Um langflest ákvæði þess ætla ég ekki að hafa mörg orð, a.m.k. ekki í 1. umr. Eitt ákvæðið fjallar um gerð fjarskiptaáætlunar sem ég sé ekki annað en að sé mjög æskileg breyting, þ.e. að stjórnvöld geri áætlun til lengri tíma um þessi mál eins og tíðkast svo víða annars staðar í auknum mæli, sem betur fer. Hér er komið inn á skipun fjarskiptaráðs. Hér er komið inn á ákvæði um vernd fjarskiptastrengja í sjó, ákvæði um álagningu og innheimtu álags á jöfnunarsjóðsgjald, ákvæði um mat á rétti til greiðslu vegna alþjónustu, kröfur um skráningu eigenda síma og síðan ýmis ákvæði, m.a. ótímabundin leyfi vegna þráðlauss sendibúnaðar o.fl.
Um það sem ég hef talið upp ætla ég ekki að hafa mörg orð við þessa umræðu. Ég staldraði reyndar svolítið við fjarskiptaráðið og skipan þess. Ákvæðið í 1. gr. um skipan fjarskiptaráðs virkaði svolítið einkennilega á mig. Þar er talað um að samgönguráðherra skipi tvo fulltrúa í fjarskiptaráð án tilnefningar og skuli annar vera formaður en hinn varaformaður. Aðra fulltrúa úr ráðinu skipar ráðherra úr hópi helstu hagsmunaaðila eftir tilnefningu í samræmi við reglur sem hann setur þar um.
Mér finnst í fyrsta lagi þetta ákvæði svolítið óskýrt og opið og löggjafinn vera þarna í raun að skrifa undir nánast óútfyllta ávísun um skipan þessa ráðs. Ég held að við ættum að skoða það í hv. samgöngunefnd hvort ekki sé hægt að kveða nánar á um skipan ráðsins heldur en þarna er gert. Það er ekkert talað um það hversu margir þeir eiga að vera og maður getur líka velt því fyrir sér hverjir séu helstu hagsmunaaðilar. Eru ekki neytendur á meðal þeirra. Mér þætti eðlilegra að það yrði tiltekið aðeins nánar í þessu ákvæði hvernig þetta ráð ætti að vera skipað. En við skipan ráðsins að öðru leyti og tilganginn með því geri ég ekki athugasemdir og held að það sé bara hið besta mál.
Það eru fyrst og síðast ákvæðin um skyldu fjarskiptafyrirtækja til að veita lögreglu upplýsingar og til að fjárfesta í hlerunarbúnaði sem ég geri alvarlegar athugasemdir við og hins vegar skyldu til varðveislu lágmarksskráningar gagna um fjarskiptaumferð í eitt ár sem var komið lítillega inn á áðan í andsvörum. Það er með öðrum orðum einkum 2. gr. frumvarpsins og sú 7. sem ég ætla að gera að umtalsefni við 1. umr.
Í 2. gr. segir að fjarskiptafyrirtæki skuli án endurgjalds tryggja þar til bærum yfirvöldum aðgang að búnaði til hlerunar símtala og annarrar löglegrar gagnaöflunar í fjarskiptanetum sínum eða fjarskiptaþjónustu. Hæstv. ráðherra hefur farið hér yfir það hver sé hugsunin á bak við þetta ákvæði. Við þekkjum þessa umræðu líka m.a. í tengslum við frumvarp sem var til umræðu á þinginu nú nýverið. Ég man ekki hvort það var fyrir áramótin eða hvort það er lengra síðan. En það var alla vega fyrir skömmu síðan sem við ræddum frumvarp sem kom fyrir allsherjarnefnd og frumvarp frá hæstv. dómsmálaráðherra um svipuð atriði. Þar var farið yfir það hvers vegna það væri nauðsynlegt lögreglu að hafa aðgang að svona búnaði. Í sjálfu sér skilur maður alveg rökin fyrir því þó ég telji eitt atriði gríðarlega mikilvægt að þegar verið er að gera svona breytingar því eins og hæstv. ráðherra sagði áðan þá er það hv. Alþingis, þá er það okkar að tryggja að farið sé mjög ítarlega að öllum reglum um persónuvernd í svona málum. Ríkislögreglustjóri vill að sjálfsögðu fá sem opnastar og víðastar heimildir til að rannsaka sín mál. Það er eðlilegt. En það er okkar að tryggja að ekki sé farið út fyrir mörkin í þessum efnum.
Ég tók líka eftir því, a.m.k. ef marka má frétt í Fréttablaðinu nú nýverið, að þar kom fram að Persónuvernd hafi skrifað samgönguráðuneytinu og óskað eftir frumvarpi um breytingar á þessum fjarskiptalögum sem hefur verið lagt fyrir ríkisstjórn. En frumvarpið var ekki sent Persónuvernd til umsagnar, aðeins kynnt munnlega á fundi með stjórnendum stofnunarinnar, segir í þessari umræddu frétt. En í athugasemdum með frumvarpinu sem við ræðum hér segir að frumvarpið hafi veri unnið í samráði við Póst- og fjarskiptastofnun auk þess sem það hefur verið sent til umsagnar helstu hagsmunaaðila og Persónuverndar. Ég vil inna hæstv. ráðherra eftir því hvort sé réttara. Var frumvarpið sent til umsagnar Persónuverndar eða var það einungis kynnt munnlega fyrir þeim sem hafa með þau mál að gera? Mér finnst mikill munur vera þar á þegar við erum að tala um jafnviðkvæm málefni og við erum að ræða hér. Þetta verður að vera algerlega skýrt. Ég tel reyndar eðlilegt að þetta frumvarp hefði verið unnið í samráði við Persónuvernd ekki síður en það hefur verið unnið í samræmi við Póst- og fjarskiptastofnun vegna þess að það viðkvæma í þessu máli er það sem snýr fyrst og síðast að Persónuverndinni.
Það er ekki aðeins þessi skylda fjarskiptafyrirtækjanna til að tryggja aðgang að búnaði til hlerunar sem er athugasemdaverð heldur ekki síður það að verið er að skylda þessi fyrirtæki til að fjárfesta í slíkum búnaði eða til að tryggja yfirvöldum aðgang að honum. Ég velti því fyrir mér af hverju í ósköpunum sú skylda sé lögð á hendur fjarskiptafyrirtækja. Er raunhæft, virðulegi forseti, að leggja slíka skyldu á hendur litlum fyrirtækjum sem eru að hasla sér völl á þessum viðkvæma markaði? Eins og við vitum hefur það reynst mörgum ansi erfitt og ekki hafa öll fyrirtæki sem það hafa reynt náð að blómstra, því miður, á þeim markaði. Er raunhæft að leggja slíka skyldu á hendur fjarskiptafyrirtækjunum sjálfum? Er ekki nóg að kveða á um að þeim sé skylt að veita aðgang en ekki að þeim sé skylt að tryggja búnaðinn? Af hverju í ósköpunum er þessi búnaður ekki í eigu þar til bærra yfirvalda frekar en að verið sé að tryggja að símafyrirtækin sem slík veiti þennan búnað
Fram hafa komið athugasemdir um þetta frumvarp til okkar þingmanna og ég heyri að í síðasta máli var vitnað í umsagnir félags sem kallar sig Netfrelsi. Þeir hafa líka sent okkur athugasemdir um þetta tiltekna frumvarp. Nú þekki ég ekki til þessa félagsskapar að öðru leyti en því að þeir segja í umsögn sinni að hann sé vettvangur netverja sem vilji tryggja frjálsa umræðu á netinu. Eins og ég segi þá þekki ég ekki mjög til þessa félagsskapar. En ég er að mörgu leyti sammála ýmsum athugasemdum sem koma fram í umsögn þeirra. Þeir mótmæla harðlega öllum fyrirætlunum um að leggja þá byrði á herðar fjarskiptafyrirtækja að útvega hlerunarbúnað því af þessu muni hljótast umtalsverður kostnaður sem mun lenda á viðskiptavinum fyrirtækjanna og ganga þvert á þau sjónarmið að lækka fjarskiptakostnað heimila í landinu. Eðlilegt er að fjarskiptafyrirtæki séu skyldug til að búa svo að fjarskiptanetum sínum að lögreglu sé fært að hlera á þeim netum en búnaður til slíks ætti að vera í eigu yfirvalda, segja þeir um þessi atriði.
Það er fullyrt í athugasemdum við 2. gr. frumvarpsins að eðlilegt þyki að fyrirtækin sjálf standi straum af því að byggja upp net sín á þann hátt að þessi aðgangur sé mögulegur og því er lagt til að sett verði ákvæði sem kveði skýrar á um skyldu fjarskiptafyrirtækja í þessum efnum og allur vafi verði tekinn af um ábyrgð fyrirtækjanna sjálfra um fjármögnun á búnaði til hlerunar og annarrar gagnaöflunar. Ég set stórt spurningarmerki, virðulegi forseti, við að þetta sé eðlilegt. Ég er ansi hrædd um að þetta sé nokkuð sem við þurfum að taka ítarlega umræðu um í hv. samgöngunefnd, þ.e. hvort eðlilegt sé að leggja þessa skyldu á herðar fjarskiptafyrirtækjunum.
Ég vildi koma lítillega inn á 7. gr. frumvarpsins líka í mínu máli. Þar er verið að gera breytingu á 42. gr. fjarskiptalaganna. Það var komið inn á það áðan í umræðunni að þar er kveðið á um að fjarskiptafyrirtæki skuli í þágu rannsókna opinberra mála og almannaöryggis varðveita lágmarksskráningu gagna um fjarskiptaumferð notenda í eitt ár. Lágmarksskráningin skal tryggja að fjarskiptafyrirtæki geti upplýst hver af viðskiptavinum þess var notandi tiltekins símanúmers, IP-tölu eða notandanafns, jafnframt því að upplýsa um allar tengingar sem notandinn hefur gert, tímasetningar þeirra, tímalengd, hverjum var tengst, magn gagnaflutnings hvort sem er til eða frá viðkomandi notanda. Fjarskiptafyrirtæki skal tryggja vörslu framangreindra gagna og er óheimilt að nota eða afhenda umræddar upplýsingar öðrum en lögreglu eða ákæruvaldi í samræmi við ákvæði 3. mgr. 47. gr. og væntanlega þá að undangengnum dómsúrskurði eins og hæstv. ráðherra rakti áðan. Eyða ber umferðargögnunum að þessum tíma liðnum enda sé ekki þörf fyrir þau á grundvelli 2. mgr.
Virðulegi forseti. Þarna er eigi að síður, þrátt fyrir að aðgangur að þessum gögnum eigi ekki að vera heimill nema að undangengnum dómsúrskurði, verið að safna þarna gríðarlegu magni persónuupplýsinga og við það set ég spurningarmerki. Ef við tökum til samanburðar mál sem var hér til umræðu og kom fyrir allsherjarnefnd þá minnir mig að við höfum afgreitt það mál þannig frá allsherjarnefnd og frá þinginu að lokum að heimilt væri að kveða á um hlerun ef hún tengdist tilteknum einstaklingi, að ekki væri heimilt að kveða bara á um hlerun eins og opna heimild. En í þessu fyrirkomulagi, virðulegi forseti, er verið að safna gríðarlegu magni persónuupplýsinga. Maður veltir líka fyrir sér hver hafi þá skyldu að eyða þessum gögnum, hver tryggi að þeim sé eytt að einu ári liðnu o.s.frv. Aftur komum við að þessu mikilvæga atriði sem snýr að Persónuvernd sem hefur með að gera nákvæmlega mál eins og þessi og á að tryggja að eftir tilteknum reglum sé farið. Ég sakna þess að sjá ekki skýrt orðað í frumvarpinu um að Persónuvernd hafi fallist á að þetta megi gera með þessum hætti. Ég hef a.m.k. um það miklar efasemdir, virðulegi forseti, og ef maður skoðar líka umsögn Netfrelsis sem aftur gerir miklar athugasemdir við þessa grein þá segja þeir í umsögn sinni, með leyfi forseta:
„Með tillögu þessari að breytingum á 42. gr. fjarskiptalaga er hart vegið að friðhelgi einkalífsins og er Netfrelsi einstaklega mótfallið fyrirhuguðum breytingum. Um er að ræða varðveislu gagna sem ein og sér geta í besta falli verið leiðbeinandi við rannsókn máls. Tilskipun ESB nr. 2002/58/EB“ — sem vísað er í í frumvarpinu að krefjist þessara breytinga — „snýst að mestu leyti um að auka vernd einkalífsins og er því í hæsta máta undarlegt að einu valkostar ákvæði tilskipunarinnar sem áhugi er fyrir að leiða í lög að þessu sinni séu þau ákvæði sem ganga hvað harðast gegn tilgangi hennar. Að gefnu tilefni skal bent á að fyrirhugaðar breytingar myndu hafa í för með sér umtalsverðan kostnað fyrir fjarskiptafyrirtæki sem á endanum kemur úr vasa neytenda auk þess sem óæskilegt væri að samþykkja breytingar sem þessar án þess að fyrir liggi reglur um varðveislu gagnanna, aðgang að þeim og eyðingu.“ — Undir þetta vil ég sérstaklega taka.— „Í athugasemdum kemur fram að nota megi „búnað sem er nú þegar til staðar,“ en það er fjarri lagi að flest fjarskiptafyrirtæki haldi þessar upplýsingar nú þegar og því munu mörg þeirra þurfa að fjárfesta í búnaði til að standast þessar kröfur.“
Þetta fullyrða þeir í sinni umsögn. Ég hef svo sem ekki gert könnun á því hvað er til í þessu. En ef svo er, virðulegi forseti, þá hljómar þessi skylda afar einkennilega.
Þeir fullyrða líka í umsögn sinni að tilskipun Evrópusambandsins krefjist ekki setningar umræddra lagaákvæða. Ég vil kannski inna sérstaklega eftir því, virðulegi forseti. Er það svo að tilskipunin krefjist innleiðingar þessara lagaákvæða eða erum við að fara lengra en okkur er skylt samkvæmt þessari tilskipun?
Þeir benda líka á að einfalt sé að fela slóðir sínar á netinu og í símkerfinu og að fyrirhuguð breyting mundi einnig leggja þær byrðar á einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir að stunda sambærilega gagnaöflun til verndar sér. Þeir benda á að hægt sé að áframsenda tengingar á netinu í gegnum óteljandi tölvur og einfalt er að áframsenda símtöl gegnum mörg símkerfi. Búast má við aukinni notkun slíkra úrræða sem og auknu framboði slíkrar þjónustu innan lands sem utan væri ákvæði frumvarpsins fært í lög og rannsóknir því torveldaðar. Þetta draga þeir fram í umsögn Netfrelsis.
Virðulegi forseti. Ég held að ýmislegt, einkum það sem snýr að þessum tveimur ákvæðum frumvarpsins, 2. og 7. gr., þurfi að skoða rækilega og skoða betur og það er reynsla mín af því þegar Alþingi hefur verið að fjalla um persónuupplýsingar og meðferð þeirra að þá þarf að stíga mjög varlega til jarðar. Það er í mínum huga lykilatriði að í slíkum málum sé Persónuvernd höfð með í ráðum. Það er hennar hlutverk og til þess er hún til. Ég held að hv. samgöngunefnd þurfi þegar þetta mál kemur þangað til umfjöllunar að skoða ítarlega hvað sé til í því að þarna sé gengið í fyrsta lagi lengra en þörf krefur og hvort við séum að fara út á ystu nöf hvað persónuvernd varðar.
Virðulegi forseti. Ég vil í lokin ítreka spurningar mínar til ráðherra. Er nauðsynlegt samkvæmt ákvæðum þessarar tilskipunar að innleiða þessar reglur eða erum við að ganga lengra en tilskipunin kveður á um? Var málið sent Persónuvernd til umsagnar formlega og fékk hún kost á því að tjá sig eða koma með athugasemdir um frumvarpið áður en það kom fyrir hið háa Alþingi og ef svo er hvaða athugasemdir hefur Persónuvernd þá gert við frumvarpið?