Fjarskipti.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir það með hv. þm. Jóni Bjarnasyni að auðvitað eigum við að leggja áherslu á að ala unga fólkið upp í guðsótta og góðum siðum. (Gripið fram í.) Það er grundvallaratriði. Hins vegar sitjum við uppi með það engu að síður að það eru ýmsir aðilar sem misnota aðstöðu og þegar um er að ræða að misnota aðstöðu í gegnum fjarskiptakerfin til lögbrota eigum við að búa þannig um hnútana að hægt sé að ná lögbrjótunum og koma í veg fyrir að þeir skjóti sér í skjól þar sem ekki er hægt að ná til þeirra. Frumvarpið gengur út á það.
Aðeins út af þeirri orðræðu að hér sé meira eftirlit en annars staðar, þá efast ég stórlega um það, satt að segja. Hvað varðar frelsiskortin svokölluðu og að menn komi með þau frá útlöndum, þá fjallaði ég alveg sérstaklega um að við náum aldrei utan um það allt saman. Menn geta farið til útlanda og keypt sér kort og það er partur af þeim glufum sem eftir sem áður verða í þessu kerfi öllu, en ákvæðin í frumvarpinu eru tilraunir til að girða fyrir þær keldur sem kunna að vera í kerfinu hjá okkur. Ég hlýt að gera þá kröfu til þingmanna að þeir geti sameinast um að finna leiðir til þess að velja bestu kostina og hv. samgöngunefnd fær að sjálfsögðu það verkefni eftir umfjöllun hér.