131. löggjafarþing — 113. fundur,  19. apr. 2005.

Fjarskipti.

738. mál
[18:17]

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegi forseti. Óhjákvæmilegt er að koma aðeins inn á nokkur atriði vegna ræðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar.

Fyrst er til að taka að ég hef komið inn á það áður og vil ítreka það hér og nú að þau ákvæði sem hér er verið að fjalla um og varða skráningu gagna o.fl. eru innan þeirra marka sem tilskipun um þessi atriði gefur okkur svigrúm til. Það er ekki ástæða til að vefengja það. (Gripið fram í.) Það liggur alveg fyrir. Það er innan þeirra marka.

Hver kostnaðurinn við hleranir verður er afar erfitt að áætla. Það liggur fyrir að markaðsráðandi fyrirtæki hefur yfir þessum búnaði að ráða og sérstök ákvæði fjalla um það að til þess fyrirtækis megi leita. Ég tel hins vegar að það geti ekki verið þá neitt tiltökumál þó að hv. samgöngunefnd fari rækilega yfir það til þess að kanna betur hver þessi kostnaður er og hvaða byrðar muni leggjast á símafyrirtækin. Ég tel fullkomlega eðlilegt að vísa til þess. En ég hef engar ástæður til að ætla að þetta verði óbærilegar byrðar á fyrirtækjunum.

Varðandi hvaða þjóðir viðhafa þessa skráningu þá hef ég sagt það fyrr í umræðunni að margar þjóðir hafa verið að fjalla um þessi ákvæði tilskipunarinnar. Ég held að langflest ef ekki öll stjórnvöld vilji hafa þessa hluti í góðu lagi til þess að koma í veg fyrir að fjarskiptakerfin séu misnotuð með þeim alvarlegu afleiðingum sem ég rifjaði hér upp með tilvitnun í ræðu hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur.

Hv. þingmaður þrástagast á því sem hann kallar lágmark skráningar. Af því tilefni er nauðsynlegt að rifja upp 7. gr. frumvarpsins. Þar segir, með leyfi forseta:

„Lágmarksskráningin skal tryggja að fjarskiptafyrirtæki geti upplýst hver af viðskiptavinum þess var notandi tiltekins símanúmers, IP-tölu eða notendanafns, jafnframt því að upplýsa um allar tengingar sem notandinn hefur gert, tímasetningar þeirra, tímalengd, hverjum var tengst, magn gagnaflutnings hvort sem er til eða frá viðkomandi notanda.“

Það er því fyrst og fremst verið að leggja það í vald viðkomandi símafyrirtækis að það skrái þær upplýsingar sem tryggja að fyrirtækið geti gefið nauðsynlegar upplýsingar til lögregluyfirvalda að undangengnum dómi. Menn tala í þessari umræðu eins og það geti bara hver sem er komist í þessi gögn. Það er ekki þannig. Það er fjarri öllu lagi. Það er að undangengnum dómi sem menn hafa aðgang að þessum gögnum. Það er auðvitað grundvallaratriði og skiptir miklu máli í öllu þessu samhengi.

Hv. þingmaður efaðist um vilja ráðherra til þess að ráðfæra sig við Persónuvernd. Ég hef getið um það í þessari umræðu áður að fulltrúar Persónuverndar hafa mætt til fundar í ráðuneytinu við undirbúning þessa máls auk þess sem samband var haft við fulltrúa Persónuverndar síðar. Það er óþarfi að gera þau samskipti tortryggileg enda hef ég margítrekað og undirstrikað að persónuverndarlöggjöfin er svo mikilvæg að fram hjá henni verður ekkert gengið enda eru ákvæði frumvarpsins sniðin að sjálfsögðu að þeirri löggjöf eins og eðlilegt er.

Að öðru leyti, virðulegur forseti, þakka ég fyrir þessa umræðu (Forseti hringir.) og vænti þess að þetta frumvarp verði afgreitt fyrir vorið.