Stefna í fjarskiptamálum 2005--2010.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon minnist oft á Nýja-Sjáland og hætturnar sem þar má finna og draga lærdóm af. Ég tek algjörlega undir með hv. þingmanni að við gerum miklar kröfur og við eigum að gera miklar kröfur vegna þess að bætt fjarskipti og öflug þjónusta skapar okkur Íslendingum svo mikla möguleika.
Ég held því fram að þau áform sem uppi eru í þeirri áætlun sem er til umfjöllunar sé einhver mesta byggðaaðgerð sem við getum tekist á við. Ég held að það hljóti að geta verið býsna skemmtilegt viðfangsefni fyrir hv. þingmenn að fá slíkt tæki í hendurnar til að bæta búsetuskilyrðin um allt land. Unga fólkið sem býr í dreifbýlinu og einnig hinir eldri nýta sér internetið til að leita sér þekkingar, til náms og til viðskipta. Ferðaþjónustan á t.d. geysilega mikið undir því að fjarskiptin séu örugg, ódýr og aðgengileg. Með „aðgengileg“ á ég við að háhraðatengingar og GSM-símasambönd séu sem víðast sem tryggi viðskiptin. Heimasíður ferðaþjónustufyrirtækja eru meira og minna að verða lykillinn að viðskiptunum. Það eru bein viðskipti með sítengdum samböndum á milli þeirra sem eru að kaupa á markaði úti um allan heim og þeirra í ferðaþjónustu bænda sem selja þjónustu.
Við eigum því mikið undir og þess vegna eigum við að (Forseti hringir.) sameinast um að standa vel að þessum málum.