131. löggjafarþing — 113. fundur,  19. apr. 2005.

Um fundarstjórn.

[20:04]

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég ætla að vekja athygli forseta á því að hér hefur staðið fundur linnulaust síðan upp úr hádegi og orðið kvöldsett. Það er reyndar hið fegursta kvöld úti og væri ekki dónalegt að ljúka störfum og ganga út í góða veðrið.

Ég ætla að inna sérstaklega eftir því hvort það eigi að rjúfa þá venju að gefa kvöldmatarhlé þegar svo langt er liðið á kvöld ef enn á að funda og ræða mikil mál. Það kemur mér nokkuð á óvart að forseti skuli ætla að halda mönnum hér sársoltnum við umræður lagt inn í kvöldið eða jafnvel nóttina. Er það virkilega ætlun forseta?

(Forseti (HBl): Það er sjálfsagt að verða við því að veita kvöldmatarhlé. Fundi er frestað í hálftíma. Ég vona að það sé nóg. Fundi verður fram haldið 25 mínútur fyrir níu.)