Staða Landspítalans.
Þuríður Backman (Vg):
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ástu R. Jóhannesdóttur fyrir að taka upp málefni Landspítala – háskólasjúkrahúss fyrir þingfrestun þar sem mikilvægt er að vekja athygli á margvíslegum vanda í þjónustu og rekstri hátæknisjúkrahússins.
Það er ljóst að á þeim tíma sem liðinn er frá sameiningu sjúkrahúsanna í október 2001 hefur farið saman mikill kostnaður vegna sjálfrar sameiningarinnar, þröngur fjárhagsrammi og því stóraukin krafa um hagræðingu í öllum rekstri. Á þessu tímabili hefur krafan um styttri legutíma, aukna göngudeildarþjónustu og frekari einkarekstur á ýmsum sviðum komið fram af miklum þunga og fer þar saman fagleg hugmyndafræði og krafan um sparnað í rekstri sjúkrahússins. Þessi þróun hefur leitt til aukinnar hjúkrunarþyngdar og inniliggjandi sjúklinga. Að auki hefur ýmis stoðþjónusta verið lögð af í sparnaðarskyni og hefur það komið illa við sjúklinga og starfsmenn. Aukinni hjúkrunarþyngd hefur ekki verið fylgt eftir með fjölgun stöðugilda hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða en aukinn hraði og gegnumstreymi sjúklinga veldur álagi, ekki eingöngu á umönnunarstéttirnar heldur á allar starfsstéttir.
Auk þessa hefur óeining ríkt um innra skipulag stofnunarinnar og hafa málaferli verið í gangi vegna þessa. Stjórnskipunarvandi til lengri tíma skaðar starfsemi og starfsanda stofnunarinnar og því hlýtur það að teljast réttlát krafa að hæstv. ráðherra beiti sér fyrir lausn sem leiði af sér eðlileg samskipti og frið á vinnustaðnum. Mikið og langvarandi álag, upplifun starfsmanna á að geta eingöngu uppfyllt brýnustu þarfir sjúklinganna eða sinnt nauðsynlegustu verkefnum veldur því að fólk gefst að lokum upp og leitar í önnur störf.
Af miklum rekstrar- og þjónustuvanda Landspítala – háskólasjúkrahúss er starfsmannaflótti líklega alvarlegasti þátturinn því að velgengni stofnunarinnar hefur byggst á reynslumiklu, tryggu og hörkuduglegu starfsfólki. Ef þróunin heldur áfram mun hún leiða til frekari óhappa og atvika í meðferð sjúklinga sem geta valdið alvarlegum skaða og, hæstv. forseti, með tilliti (Forseti hringir.) til alls þessa tel ég eðlilegt að sú spurning vakni hvert stefni með starfsemi LSH.